Ráðherrabreytingar í bígerð 29. desember 2011 18:39
Tillaga um breytingar á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar verður lögð fram á þingflokksfundum stjórnarflokkanna á morgun. Helst er rætt um Árna Pál Árnason og Jón Bjarnason en bæði þingflokkar og stjórnir flokkanna þurfa að samþykkja breytingarnar. Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa rætt um það undanfarna daga hvort gera eigi breytingar á ráðherraskipan. Á gamlársdag verður haldinn ríkisráðsfundur, samkvæmt venju, en ráðherraskipti eru jafnan ákveðin formlega á slíkum fundum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggjast því forystumenn stjórnarflokkana ráðast í breytingarnar á gamlársdag ef af þeim verður. Slíkar breytingar eru þó háðar samþykki þingflokka og flokksstjórna. Samfylkingin hefur því boðað þingflokksfund seinni partinn á morgun sem og flokksstjórnarfund á Hótel Nordica klukkan 18:30 en ,,áform um breytingar á ríkisstjórninni" eru á dagskrá beggja funda. Sömuleiðis hafa vinstri grænir boðað þingflokksfund á morgun klukkan korter í sex. Ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um hvaða breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni, en heimildir fréttastofu herma að rætt hafi verið um stöðu Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra og Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þá hafi jafnframt hugmyndir um frekari hrókeringar innan ríkisstjórnarinnar verið ræddar, en ekkert hefur fengist staðfest. Almennt eru þó allar slíkar ákvarðanir háðar samþykki þingflokka og flokksstjórna en greidd verða atkvæði um tillögu forystumanna ríkisstjórnarinnar á fundum þeirra á morgun.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira