Innlent

Viðræðurnar halda áfram

Samningar hafa ekki enn náðst milli sveitarfélagsins Árborgar og forsvarsmanna Sólheima í Grímsnesi um rekstur Sólheima.

Gerður var tímabundinn samningur út janúar og hefur ríkis­sáttasemjari lagt til að hann verði framlengdur út febrúar til að viðræður geti haldið áfram. Deiluaðilar höfðu í gær ekki náð saman um slíka framlengingu en viðræðurnar halda áfram.

Málefni fatlaðra færðust frá ríki til sveitarfélaga um áramót, en ekki tókst að ná samningum um rekstur Sólheima fyrir þann tíma.- bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×