Innlent

Lak bankaupplýsingum á netið - Persónuvernd úrskurðar í Hraðpeningamáli

SB skrifar
Upplýsingar um viðskiptavini Hraðpeninga lak á netið.
Upplýsingar um viðskiptavini Hraðpeninga lak á netið.

Persónuvernd hefur úrskurðað að verktaki sem birti upplýsingar um lánastöðu viðskiptavina Hraðpeninga ehf. hafi brotið gegn lögum um Persónuvernd. Á vefsíðu mannsins var hægt að hlaða niður skjali með nöfnum viðskiptavina Hraðpeninga, kennitölu þeirra og bankanúmer og upplýsingar um útistandandi lán.

Málið barst til Persónuverndar fyrir tilstuðlan Hraðpeninga en Pressan hafði í október birt fréttir af því að skjal með upplýsingum um viðskiptamenn fyrirtækisins væri aðgengilegt á netinu. Á fundi Persónuverndar með framkvæmdastjóra Hraðpeninga kom fram að lekann mætti reka til verktaka sem vann fyrir fyrirtækið.

„Fyrirtækið hafði gert verksamning og trúnaðarsamning við umræddan kerfisfræðing og lagt fyrir hann að eyða umræddum upplýsingum þegar hann hefði lokið vinnu sinni. Í stað þess að eyða listanum setti kerfisfræðingurinn listann á læst heimasvæði á internetinu."

Heimasvæði kerfisfræðingsins hét www.leppaludar.com en sú síða er nú lokuð. Í útskýringum kerfisfræðingsins kemur fram að eina helgi hafi hann fyrir mistök opnað svæðið og skjalið því orðið aðgengilegt öllum.

„Gleymdi ég hins vegar að eyða listunum og vegna óheppilegra mistaka af minni hálfu lentu þau á leppaludar.com léninu mínu sem var opið út á netið. Fjarðlægði ég þau og eyddi um leið og þetta komst upp. Hræðileg mistök af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð á því að þetta hafi gerst. Tek fram að ekki var um viljaverk að ræða."

Ljóst er að upplýsingarnar sem láku á netið voru afar viðkvæmar. Auk kennitölu og bankanúmers viðskiptavina Hraðpeninga mátti finna símanúmer, tölvupóstföng, tékkaábyrgðarnúmer, upplýsingar um hvenær lán var tekið, hverjir væru með útistandandi lán og ip-tala viðkomandi einstaklinga.

Persónuvernd úrskurðar í málinu að kerfisfræðingurinn hafi viðurkennt mistök og gáleysi. Hann hafi gengið gegn fyrirmælum Hraðpeninga. Vinnsla hans með upplýsingarnar sé ólögmæt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×