Konur á Suðurnesjum sameinast undir heitinu SKASS 1. febrúar 2011 14:34 Um 100 konur voru á stofnfundi SKASS í september. Næsti fundur er í kvöld
Samstaða kvenna á Suðurnesjum hefur vakið athygli en í september komu rúmlega 100 konur saman til að stofna SKASS, Samtök kraftmikilla, alvöru, skapandi Suðurnesjakvenna. SKASS eru opin samtök fyrir konur á Suðurnesjunum. Tilgangurinn er að efla tengslanet kvenna á svæðinu, fræðast og fræða, efla okkur sjálfar og um leið hvor aðra og styðja konur á Suðurnesjunum til dáða í námi og starfi. Einkunnarorð SKASS eru gleði, kraftur og sköpun. Frumkvöðlasetrið á Ásbrú hefur þann tilgang að styðja við þá sem eru að þróa viðskiptahugmynd, eru að stíga fyrstu skref í rekstri, eða vilja bæta starfandi fyrirtæki með nýsköpun og vöruþróun. SKASS og Frumkvöðlasetrið hvetja konur til að fjölmenna á febrúarfund SKASS sem haldinn er í kvöld klukkan 20.00 og styðja þannig við framtakssamar konur á Suðurnesjunum. Febrúarfundurinn verður með nokkuð breyttu sniði frá því sem venjulegt er, en þriðjudagskvöldið 1. febrúar mun fjöldi flottra kvenna af Suðurnesjunum kynna verkefni sín og fyrirtæki. Suðurnesjakonur ætla að hvetja hverja aðra til dáða og láta reynslu athafnakvenna verða okkur hinum hvatning til að láta drauma okkar rætast, hverjir sem þeir eru! Díana Lind Monzon, Suðurnesjasönkona úr söngleiknum Buddy Holly tekur lagið og gestir koma frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Félagi kvenna í nýsköpun. Að auki mun Kristín Pétursdóttir frá Auði Capital segja nokkur orð, en Kristín er sendiherra verkefnisins Female Entrepreneurship in Nordic Regions. Kaffitár býður upp á kaffisopa, Íslandsbanki svalar einnig þorstanum auk þess sem Bláa Lónið gefur smakk af sushi sem er nýtt á matseðlinum. Á morgun, 2. febrúar hefst svo námskeiðið Brautargengi frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er von forsvarsmanna SKASS og Frumkvöðlasetursins að konur á Suðurnesjunum noti það tækifæri til að styrkja sig og sækja enn frekar í sig veðrið!Tenglar:SkassFrumkvöðlasetrið á Ásbrú
Mest lesið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Innlent Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Erlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Handtekinn grunaður um íkveikju Innlent Fleiri fréttir Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Sjá meira