Örtröð í Leifsstöð Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. ágúst 2011 17:17 Fjöldi fólks hefur ferðast um Leifsstöð í júlí.
Aldrei í sögu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hafa fleiri farþegar farið um flugstöðina í júlímánuði en í þeim mánuði sem nú er nýliðinn. Samtals fóru 332.501 farþegar um flugstöðina. Þar til nú í ár var júlímánuður 2007 sá stærsti í sögu flugstöðvarinnar en þá fóru samtals 309.004 farþegar um stöðina. Sé eingöngu horft til brottfararfarþega þá voru þeir 5,3% fleiri í júlí árið 2007 en nú í ár en komufarþegar voru álíka margir nú og 2007. Fjöldi skiptifarþega hefur hins vegar aukist til muna samanborið við 2007 en það eru þeir farþegar sem millilenda á Keflavíkurflugvelli til að halda áfram för. Þeim fjölgaði úr 48.021 í júlí 2007 í 78.362 í nýliðnum júlímánuði, eða um 63,2%. Í samanburði við árið 2010 hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um 22% fyrstu 7 mánuði ársins, úr 991.224 árið 2010 í 1.209.021 í ár. Brottfararfarþegum fjölgaði um 18,6%, komufarþegum um 18% og skiptifarþegum um 40%. Að sögn Hlyns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, er þessi aukning nú í sumar umfram þær væntingar sem gerðar voru í upphafi árs. „Starfsfólk hér á Keflavíkurflugvelli hefur staðið sig frábærlega en flesta daga vikunnar hafa verið afgreidd upp í 20 farþegaflug samtímis á háannatíma bæði að morgni og síðdegis. Ágústmánuður lítur vel út og við erum bjartsýn um haustið og veturinn," segir Hlynur í fréttatilkynningu.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira