Ólíklegt að erlendir aðilar bjóði í verkið 11. janúar 2011 05:30 Jarðvegslosun á Hólmsheiði. Áætlað er að framkvæmdir við fangelsið á Hólmsheiði muni hefjast á fyrri hluta árs.fréttablaðið/anton
Ríkiskaup, sem veita opinberum stofnunum þjónustu og ráðgjöf á sviði útboða, ráða hvort útboðsgögn sem gefin eru út innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eru á íslensku eða á öðrum tungumálum. Gögn fyrir framkvæmdir við fangelsið á Hólmsheiði verða birt á íslensku. Guðmundur Hannesson, forstöðumaður ráðgjafarsviðs Ríkiskaupa, segir mun þægilegra að vinna gögnin á íslensku, einkum ef búist sé við því að flestir bjóðenda verði Íslendingar. „Hólmsheiði er ekki stórt verkefni á erlendan mælikvarða. En það er alltaf spurning hversu langt erlendir aðilar eru tilbúnir að teygja sig, við getum auðvitað aldrei útilokað það,“ segir Guðmundur. „Það er í sjálfu sér ekki ósanngjarnt að stórir erlendir aðilar sem hafa áhuga á verkefninu láti þá bara snara gögnunum yfir á ensku fyrir sig.“ Guðmundur segir að í þeim tilvikum sem útboðsgögn hafi verið birt á ensku hafi verið vitað um áhuga tiltekinna erlendra aðila. Þá hafi sú ákvörðun verið tekin að vinna gögnin í einu lagi á ensku, til þess að margir aðilar þurfi ekki að þýða gögnin hver í sínu horni. Einnig bendir Guðmundur á að íslenskir tæknifræðingar eigi nánast eins auðvelt með að skilja ensku og íslensku. Samtök iðnaðarins lýstu yfir óánægju sinni í febrúar í fyrra, þegar Ríkiskaup birtu útboðsgögn á ensku vegna kaupa á nýjum innréttingum í Háskóla Íslands. Guðmundur segir erlendan aðila hafa sýnt því verki áhuga fyrir fram og því hafi gögnin verið unnin á ensku. Einnig hefðu hátæknileg atriði getað misfarist í þýðingum úr íslensku, en um ýmis tæki og tól á rannsóknarstofu HÍ var að ræða. „Burtséð frá öllu er meginmarkmiðið hjá okkur alltaf að fá besta og hagstæðasta verðið,“ segir Guðmundur. Vinnu Ríkiskaupa við útboðsgögn fangelsisins er nánast lokið, en beðið er eftir grænu ljósi hjá innanríkisráðuneytinu til birtingar. Jón Magnússon, skrifstofustjóri ráðuneytisins, segir vinnu enn vera í gangi hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, sem er að skrifa útboðslýsingu annars vegar og byggingarlýsingu hins vegar. Sú vinna ætti að taka 3 til 4 vikur. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Fleiri fréttir Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Sjá meira