Jóhanna vill sömu lækkun og forsetinn 12. mars 2011 05:00 Fram hefur komið hjá aðstoðarmanni Jóhönnu Sigurðardóttur að hún hafi ekki áttað sig á því að laun hennar sem handhafa forsetavalds hafi ekki lækkað í samræmi við lækkuð laun forseta Íslands.Fréttablaðið/Anton
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur óskað formlega eftir því við Fjársýslu ríkisins að laun hennar sem handhafa forsetavalds verði lækkuð sem nemur þeirri launalækkun sem forseti Íslands tók á sig í ársbyrjun 2009. Gunnar H. Hall fjársýslustjóri staðfestir að einn af þremur handhöfum forsetavalds hafi óskað eftir slíkri launalækkun. Eins og Fréttablaðið hefur fjallað um fá forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar laun sem handhafar forsetavalds þegar forsetinn er erlendis. Hver um sig fær þriðjung af launum forseta. Ekki náðist í Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, eða Ingibjörgu Benediktsdóttur, forseta Hæstaréttar, við vinnslu fréttarinnar í gær, og því er óvíst hvort þær munu einnig fara fram á lægri greiðslur. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, óskaði eftir því í lok árs 2008 að laun hans yrðu lækkuð. Þá höfðu laun forsætisráðherra lækkað um fimmtán prósent og óskaði Ólafur eftir sömu lækkun. Þar sem stjórnarskrá kveður á um að óheimilt sé að lækka laun forseta á miðju kjörtímabili þurfti hann að óska eftir því við Fjársýslu ríkisins að launagreiðslur til hans yrðu lækkaðar. Þrátt fyrir launalækkun forseta lækkuðu laun handhafa forsetavalds ekki, þrátt fyrir að embætti forseta Íslands hafi í tvígang bent á misræmi í greiðslum til forseta og handhafanna í samskiptum við Fjársýslu ríkisins, sem sér um greiðslurnar fyrir hönd ríkisins. Ágreiningur er uppi um hvort miða skuli við útborguð laun forseta eða laun hans eins og kjararáð hefur úrskurðað um þegar greiðslur til handhafa forsetavalds eru reiknaðar. Embætti forseta Íslands telur eðlilegt að miða við útborguð laun forseta en Fjársýsla ríkisins og starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins telja að miða verði við laun forseta eins og þau hafa verið ákveðin af kjararáði. Laun forseta Íslands voru um 1,8 milljónir króna á mánuði áður en hann óskaði eftir lækkun, en um 1,5 milljónir frá því lækkunin tók gildi um áramótin 2009. Forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar hafa hingað til fengið um 20 þúsund krónur fyrir hvern dag sem forsetinn er erlendis. Jóhanna mun samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins fá um 17 þúsund krónur á mánuði eftir að hún óskaði eftir lækkun. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira