Þjálfari enska landsliðsins gagnrýnir eldri leikmenn liðsins 11. júlí 2011 10:30 Hope Powell, þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, gagnrýndi eldri og reyndari leikmenn liðsins fyrir "heigulskap“ þegar liðið tapaði í vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Frökkum. AFP
Hope Powell, þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, gagnrýndi eldri og reyndari leikmenn liðsins fyrir „heigulskap" þegar liðið tapaði í vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Frökkum. Powell segir að hún hafi átt í mestum vandræðum með að finna leikmenn sem vildu taka þeirri áskorun sem fylgir því að fara í vítaspyrnukeppni. Ungur og lítt reyndur bakvörður, Claire Rafferty, sem komið hafði inn á sem varamaður á 80. mínútu , náði ekki að skora úr fjórðu vítaspyrnunni og Fay White fyrirliði enska liðsins klúðraði fimmtu vítaspyrnunni. Powell lét eldri og reyndari leikmenn liðsins heyra það í viðtali sem Guardian tók við hana. „Ég þurfti að spyrja leikmenn þrisvar sinnum hvort þeir ætluðu að taka víti. „Hvar eruð þið?" hugsaði ég og sú fyrsta sem rétti upp höndina var 22 ára gömul stelpa, Rafferty. Kelly Smith var meidd og gat varla gengið en hún gaf sig einnig fram. Það þarf vilja til þess að taka víti en aðrir leikmenn liðsins stigu ekki fram," sagði Powell og bætti við. „Þetta eru veikleikamerki og heigulsháttur." Powell hefur gefið það í skyn að hún muni hætta sem þjálfari liðsins eftir 13 ár í starfi. Hún hefur hug á að taka að sér starf hjá enska knattspyrnusambandinu sem snýr að afreksþjálfun yngri leikmanna.
Fótbolti Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Chelsea staðfestir komu Danny Welbeck Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Real Madrid klófestir besta unga leikmann spænsku deildarinnar Þór sækir fyrirliða frá Spáni Leikbanni Mudryk aflétt Slot á leið til Sádi-Arabíu? Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ Sjáðu Tryggva stíga trylltan dans, vítakeppni Stjörnunnar og mark Vestra Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Sjá meira