Hrefnuveiðiskip verði útilokuð frá Faxaflóa 21. september 2011 06:00 Ein til tvær ferðir verða farnar til viðbótar áður en veiðunum verður hætt í ár. MYnd/Gunnar Bergmann „
Það er ekki hlustað á okkur og hrefnuveiðarnar í Faxaflóa stöðvaðar þó að við séum grenjandi af áhyggjum,“ segir Vignir Sigursveinsson, forsvarsmaður hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar í Reykjavík. Vignir segir ljóst að hvalaskoðun og hrefnuveiðar á Faxaflóa fari mjög illa saman. Hvalaskoðun sem velti um 600 milljónum króna sé stefnt í voða með veiðum á hrefnunni sem hafi fækkað verulega. Á árunum 2002 til 2004 hafi iðulega sést tugir og jafnvel yfir hundrað hrefnur á skoðunarsvæðinu. „Núna í sumar er undantekning ef við sjáum fleiri en tíu hrefnur á svæðinu. Það bendir allt til þess að veiðarnar séu að stórskaða okkur,“ segir Vignir og minnir á að veiðarnar út af fyrir sig séu umdeildar. „Og eru þó ekki nema 50 til 60 hrefnur sem er markaður fyrir.“ Vignir kveður rannsóknir sýna að sömu hrefnurnar komi á sömu staði ár eftir ár. „Af hverju taka þeir sem ráða þessa áhættu með hvalaskoðun frá Reykjavík – atvinnuveg sem er búinn að sanna sig?“ spyr hann. Frá árinu 2009 hafa hrefnuveiðimenn haldið sig utan línu sem er um það bil tólf sjómílur frá landi. Gunnar Bergmann Jónsson, eigandi fyrirtækisins Hrefnuveiðimenn ehf., sem gerir út frá Hafnarfirði og er nánast eitt um hrefnuveiðarnar, segir dýrunum alls ekki hafa fækkað. Þau hafi einfaldlega hörfað utar á Faxaflóa undan ágangi hvalaskoðunarskipa. „Þessi hvalaskoðunarfyrirtæki eru með samtals 32 ferðir á dag. Hrefnur eru spendýr sem þurfa að koma upp til að anda. Um leið og þau koma upp er vaðið á þau með fimm til átta hundruð hestafla mótorum. Ég ímynda mér að við þetta áreiti forðist dýrin að vera á þessu svæði – ef þau eru svona gáfuð eins og þetta lið vill meina að þau séu,“ segir Gunnar. Vignir segir hvalaskoðunarmenn afar áhyggjufulla. „Við skiljum ekki af hverju þeir eru að veiða einmitt þarna ef það er nóg af hrefnu allt í kring um landið. Öll hrefna sem seld er á veitingahúsum og í verslunum í Reykjavík er skotin hér í Faxaflóanum. Þess vegna tökum við þátt í að mótmæla veiðunum. Ef þeir væru annars staðar þá hefðum við ekki sömu áhyggjur af því.“ Gunnar segir kostnað við veiðarnar hafa aukist eftir að sjávarútvegsráðherra hafi gert veiðimönnum að halda sig utan áðurnefndrar línu sem afmarkar svæðið sem helgað er hvalaskoðuninni. Tveggja tíma stím sé nú á miðin. Greinin megi vart við því að vera gerð útlæg frá Faxaflóa. „En þeir ætla að keyra á þetta án allra raka og liggja á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að fá að loka Faxaflóanum alfarið fyrir næsta sumar,“ segir eigandi Hrefnuveiðimanna ehf. - gar
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira