Rafrænt eftirlit talið spara 10 til 15 pláss 21. september 2011 03:30 Fangar sem uppfylla tiltekin skilyrði geta brátt stytt afplánunartíma sinn innan fangelsisveggjanna eftir að rafrænt eftirlit verður tekið í gagnið.
Gera má ráð fyrir að um tíu til fimmtán fangelsisrými sparist á ári hverju með rýmkun samfélagsþjónustu og upptöku rafræns eftirlits með föngum í afplánun. Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. Alþingi samþykkti nýverið frumvarp um slíkt eftirlit og taka lögin gildi um næstu mánaðamót. „Upptaka rafræns eftirlits er góð og eðlileg framþróun í fullnustukerfinu,“ segir Páll. „Er þar um að ræða mikilvægt úrræði til að losun fanga úr fangelsi verði stigskipt og markviss. Með góðri hegðan getur því fangi hafið afplánun í lokuðu fangelsi, flust í opið fangelsi, þaðan á áfangaheimili Verndar og loks lokið afplánun með rafrænu eftirliti.“ Spurður um hvað fangi þurfi að uppfylla til að afplána undir rafrænu eftirliti segir Páll þau skilyrði vera lögbundin. „Meðal þeirra atriða sem nefna má til að fangi teljist hæfur til að sæta rafrænu eftirliti, er að hann hafi fastan samastað sem samþykktur er af Fangelsismálastofnun, stundi vinnu, nám, meðferð eða önnur verkefni sem Fangelsismálastofnun samþykkir og eigi ekki ólokið málum hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum.“ Inntur eftir hvaða form verði á eftirlitinu útskýrir Páll að notast verði við farsíma með staðsetningarbúnaði auk þess sem hugbúnaður hringi óreglulega í fangann þar sem staðsetning, og það að fangi sé með símann, verði staðreynd. „Þá verður vissulega mannlegt óreglubundið eftirlit á heimili og vinnustað fangans. Mikið er í húfi fyrir fangana þar sem brot á reglum varða flutning í lokað fangelsi.“ Kostnaður við rafræna eftirlitið liggur ekki endanlega fyrir en hagkvæmasta útfærsla sem jafnframt uppfyllir öryggiskröfur verður valin, að sögn Páls. Fangelsismálastofnun fær 26 milljónir króna til að koma þessu verkefni af stað auk þess að rýmka samfélagsþjónustu sem fullnustuúrræði úr sex mánuðum í níu mánuði. Páll segir vonir standa til þess að fyrsti fanginn geti hafið afplánun með rafrænu eftirliti í kringum 1. desember næstkomandi. Hann segir einungis fanga sem hafa verið dæmdir í tólf mánaða fangelsisrefsingu eða meira, og hafi í alla staði staðið sig vel og skapað sér traust, geta lokið afplánun með þessum hætti. jss@frettabladid.is
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Sjá meira