Koma úr Reykjavík til að kaupa eina röð Boði Logason skrifar 21. september 2011 14:27 Hafnarfjörður. Ætli vinningshafinn sé með miðann í veskinu eða sé farinn til útlanda og veit ekki að hann vann? mynd úr safni „
Það er búið að vera brjálað að gera og mikið um að fólk sé að koma og kaupa eina röð," segir Líney Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri Jolla í Hafnarfirði. Vinningshafinn í Víkingalottóinu í síðustu viku keypti vinningsmiðann í sjoppunni en hann keypti eina röð á fimmtíu krónur og vann rúmlega 50 milljónir. Hann hefur ekki enn gefið sig fram en hann hefur eitt ár frá vinningsdegi til að gera það. Líney segist ekki vita hver það var sem keypti miðann enda sé mikið að gera hjá henni svo ekki er hægt að fylgjast með hverjum og einum sem kaupir lottómiða. „Það eru margir sem koma og láta mann fara yfir miðann frá vikunni á undan. Við erum með marga kúnna sem kaupa sjálfval og láta mann kíkja yfir gamla miða um leið - það gæti gerst í dag. Svo gæti vinningshafinn verið farinn til útlanda," segir hún. Margar öryggismyndavélar eru í sjoppunni en Líney segist ekki hafa skoðað þær. „Við erum náttúrlega með þrjár bílalúgur og maður sér ekkert hverjir það eru sem taka við miðunum. En ef það fer að hægjast á hjá mér þá kannski sest ég yfir þær," segir hún. Hún segir mikið hafa verið að gera hjá sér síðustu daga. „Það er fólk að koma keyrandi úr Reykjavík til að kaupa eina röð," segir hún. „Nú heldur fólk að ef það kaupir eina röð geti það unnið."Tölurnar á vinningsmiðanum eru: 2 - 9 - 16 - 17 - 38 og 42
Tengdar fréttir Ráðleggur lottóvinningshafa að kaupa rauðvín Menn eiga að kaupa rauðvín, segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, aðspurður um það hvað einstaklingar geti gert við 50 milljónir króna. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum vann Íslendingur 50 milljónir í Víkingalottó í gær. Þótt flesta dreymi eflaust um svo góða glaðninga er ekki víst að allir sem vita hvernig skynsamlegast er að verja sliku fé. 15. september 2011 10:49 Kannast þú við tölurnar 2-9-16-17-38-42? "Við höfum áhyggjur af því að sá sem vann hafi hent miðanum sínum og því hvet ég alla til að skoða miðana sína," segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar Getspá. 21. september 2011 11:03 Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Sjá meira
Ráðleggur lottóvinningshafa að kaupa rauðvín Menn eiga að kaupa rauðvín, segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, aðspurður um það hvað einstaklingar geti gert við 50 milljónir króna. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum vann Íslendingur 50 milljónir í Víkingalottó í gær. Þótt flesta dreymi eflaust um svo góða glaðninga er ekki víst að allir sem vita hvernig skynsamlegast er að verja sliku fé. 15. september 2011 10:49
Kannast þú við tölurnar 2-9-16-17-38-42? "Við höfum áhyggjur af því að sá sem vann hafi hent miðanum sínum og því hvet ég alla til að skoða miðana sína," segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar Getspá. 21. september 2011 11:03