Ágústi hlíft gegn þátttöku í Exeter-fléttunni 1. júní 2011 08:00 Aðalmeðferð málsins lýkur í dag með málflutningi saksóknara og verjenda Ragnars Z. Guðjónssonar (til vinstri), Jóns Þorsteins Jónssonar (í miðið) og Styrmis Þórs Bragasonar. Mynd/GVA
Dómsmál Daginn eftir að MP banki hótaði að gjaldfella lán til félags í eigu Ágústs Sindra Karlssonar, nánasta viðskiptafélaga Margeirs Péturssonar, fékk sama félag 50 milljóna lán frá bankanum sem framlag í Exeter-fléttuna svokölluðu. Tölvupóstsamskipti benda til þess að Ágúst Sindri hafi sloppið við gjaldfellinguna gegn þátttöku í fléttunni. Þetta kom fram á öðrum degi aðalmeðferðar Exeter-máls sérstaks saksóknara á hendur fyrrverandi forsvarsmönnum Byrs og MP banka í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Ágúst Sindri stofnaði MP banka á sínum tíma með Margeiri Péturssyni og starfaði fyrst og fremst fyrir bankann til ársins 2007. Í miðju bankahruni var Ágúst látinn vita af því að fleiri en eitt útistandandi lán MP banka til félagsins ÁSK ehf. yrðu gjaldfelld. Ágúst bar fyrir dómi í gær að hann hefði verið verulega ósáttur við þá ákvörðun, enda hefði hann átt 20 milljóna innistæður í MP banka sem hefðu dugað fyrir afborgunum af lánunum. Hann hefði boðað úrsögn úr öllum stjórnum á vegum bankans vegna þessa. Nokkrum dögum síðar sendi hins vegar Thomas Skov Jensen, yfirmaður áhættustýringar MP banka, tölvupóst á Jóhann Tómas Sigurðsson, regluvörð bankans, sem innihélt svohljóðandi skilaboð: „ÁSK var ekki gjaldfellt vegna Byr-dílsins.“ Þeir sem málinu tengjast sögðust fyrir dómnum ýmist ekki þekkja til þessa tölvupósts eða ekki vita til hvers hinn svokallaði „Byr-díll“ vísaði. Af orðum saksóknara mátti hins vegar skilja að hann teldi ljóst að Ágúst hefði fengið slaka hjá stjórnendum Byrs gegn því að taka þátt í Exeter-fléttunni. Deginum eftir að hótað var að gjaldfella lán ÁSK ehf. fékk félagið nefnilega annað 50 milljóna króna lán frá MP banka, með sjálfskuldarábyrgð annars félags Ágústs sem nú er eignalaust. Það fé var síðan lánað áfram inn í Tæknisetrið Arkea, síðar Exeter, sem eiginfjárframlag í viðskiptunum með stofnfjárbréf í Byr. Byr lánaði fyrir þeim viðskiptum og með því var öll áhætta af stofnfjárbréfunum færð frá MP banka og starfsmönnum og stjórnarmönnum Byrs, yfir á Byr sjálfan. Um það snýst Exeter-málið; að sakborningarnir þrír, Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs, stjórnarformaðurinn Jón Þorsteinn Jónsson og Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, hafi stefnt fé Byrs í mikla hættu með ólögmætum lánveitingum. Það var Margeir Pétursson sem kynnti þá hugmynd fyrir Ágústi Sindra að fjárfesta í stofnfjárbréfum í Byr. Ágúst sagði fyrir dómnum að sér hefði þótt það álitlegur kostur, enda hefði hann haft trú á að Byr yrði fyrr en síðar í lykilstöðu á fjármálamarkaði og að bitist yrði um fyrirtækið. Margeir gaf símaskýrslu frá borginni Lviv í Úkraínu, þar sem hann er búsettur. Hann sagðist ekki skilja hvað átt væri við í tölvupósti Thomasar Skov um „Byr-dílinn“. Síðasti dagur aðalmeðferðar málsins verður í dag. Þá munu saksóknari og verjendur flytja mál sitt.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira