Skuldar 6,4 milljónir í dagsektir vegna Baldursgötu 1. júní 2011 09:00 Íbúar við Þórsgötu eru afar ósáttir við brunarústirnar við Baldursgötu og næsta hús sem hefur nú einnig lagst í eyði. Hópurinn krefur borgina um aðgerðir. Mynd/Valli
Eigendur hússins við Baldursgötu 32 skulda Reykjavíkurborg nú 6,4 milljónir króna í dagsektir, samkvæmt upplýsingum frá byggingafulltrúa borgarinnar. Húsið hefur staðið autt í sex ár og er einungis brunarústir eftir að kveikt var í því árið 2008. Baldursgata 34, sem er í eigu sama fyrirtækis, er nú að fara sömu leið, en búið er að negla þar fyrir alla glugga eftir að síðustu húsráðendur fluttu þaðan út. Vel yfir hundrað milljónir króna hvíla á lóðunum tveimur, að sögn Helga Gunnarssonar, forsvarsmanns Baldursgötu ehf. Hann segir kaupin á húsunum hafa verið verstu mistök sem hann hafi gert. „Við keyptum húsin árið 2005 og næstu árin á eftir skiptist afar ört um meirihluta í borginni, þannig að skipulagsmálin byrjuðu alltaf upp á nýtt. Svo var allri uppbyggingu harðlega mótmælt af nágrönnunum,“ segir Helgi. „Pólitíkin á stóran þátt í því hvernig þetta var fyrst og svo kom bankahrunið strax á eftir.“ Varðandi Baldursgötu 34, sem hefur staðið auð í tæpan mánuð, segir Helgi að ekki hafi verið neitt annað hægt að gera en að loka húsinu. „Óreiðufólk braust inn í húsið og flutti þangað inn. Við létum einfaldlega hreinsa það út og lokuðum fyrir allt,“ segir hann. Helgi vill ekki tjá sig um framhaldið, en segir málin vera í vinnslu. „Þetta er alveg skelfileg staða. Það eru mestu mistök sem við höfum gert að kaupa þessi hús,“ segir hann og bætir við að ef leysa eigi vandamálin sem fylgi niðurníddum húsum í miðborginni sé frekar letjandi en hvetjandi að beita fólk dagsektum. Borgin eigi að koma mun meira að þessum málum en hún hafi gert. „Pólitíkin ber sína ábyrgð, þó að við höfum sjálfsögðu líka gert mistök. Þetta byrjaði sem mjög góð hugmynd, en endaði alveg skelfilega.“ Hópur íbúa við Þórsgötu hefur sent Reykjavíkurborg bréf þar sem aðgerða er krafist vegna húsanna við Baldursgötu. Lilja Gunnarsdóttir, einn íbúanna, segir að þegar hús númer 34 hafi einnig lagst í eyði fyrr í mánuðinum hafi mælirinn orðið fullur. „Við erum búin að vera þolinmóðir nágrannar í mörg ár, en þegar við sáum seinna húsið fara líka var okkur nóg boðið,“ segir hún. „Þetta er náttúrlega ekki boðlegt.“ Magnús Sædal, byggingafulltrúi Reykjavíkur, segir málin vera í vinnslu. Ekkert hafi verið ákveðið um aðgerðir að svo stöddu. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Fleiri fréttir Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Sjá meira