Mikilvægt að hefjast handa við atvinnuuppbyggingu Karen D. Kjartansdóttir skrifar 6. febrúar 2011 12:19 Gjástykki
Það er mikilvægt að hefjast sem fyrst handa við atvinnuppbyggingu í Þingeyjarsýslu og til þess ætti að nýta orkuna á svæðinu. Þetta segir formaður Samfylkingarinnar í Þingeyjarsýslu. Hann mótmælir algjörri friðun Gjástykkis. Aðalfundur samfylkingarinnar í Þingeyjarsýslu var haldinn á Húsavík í gær. Í ályktun sem fundurinn sendi frá sér kemur fram skýr áhersla á að stjórnvöld standi við fyrirheit um að beita sér fyrir rannsóknum á orkuöflun á háhitasvæðum Þingeyjarsýslu svo skapa megi atvinnu og um leið nýta orkuna sem þar má finna. „Við höfum mjög miklar áhyggjur af stöðu atvinnumála á svæðinu og sú umræða sem snýr að orkuöfluninni og framkvæmdum í kjölfarið hefur dregist alltof mikið," segir Ingólfur Freysson, formaður Samfylkingarinnar í sýslunni. Í ályktuninni er einnig lagst gegn algjörri friðun Gjástykkis. „Öll sveitafélög á svæðinu hafa mótmælt þeirri yfirlýsingu um að stjórnvöld vilji friða Gjástykki algjörlega. Þarna er um að ræða ákaflega lítið brot af öllu svæðinu sem menn vilja rannsaka, sumir tala um að það sé ekki nema tvö prósent af því. Þannig það er ekkert óðelilegt að sveitarfélögin sem hafa þarna skipulagsvald vilji skoða og athuga hvað svæðið býður upp á hvað varðar orku," segir Ingólfur. Í ályktuninni er þess einnig getið að á undanförnum árum hefur íbúum í Þingeyjarsýslu fækkað. Þá þróun megi rekja til þess að störfum í frumvinnslugreinum hefur fækkað og segir að tekjur sveitarfélaganna standi tæpast undir nauðsynlegri grunnþjónustu lengur.
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Umhleypingar næstu daga Veður Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Fleiri fréttir Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Sjá meira