Innlent

Ók á móti umferð

Reykjanesbraut. Mynd úr safni.
Reykjanesbraut. Mynd úr safni.
Ökumenn, sem áttu leið um Reykjanesbraut upp úr klukkan níu í gærkvöldi, tilkynntu lögreglu um bíl, sem væri ekið á öfugum vegarhelmingi á móts við Vogaafleggjara, og stefndi hann í átt að Reykjavík. Hann sinnti ekki ljósablikki og flauti ökumannanna, sem komu á móti honum. Lögreglubílar voru sendir til móts við hann frá Reykjavík, en fundu hann ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×