Hægt að spara mikið með skipum úr trefjaplasti 24. september 2011 06:00 Um 500 fyrirtæki frá 34 löndum taka þátt í sýningunni í Smáranum. Fréttablaðið/vilhelm
Íslenskar útgerðir gætu sparað stórfé í eldsneytis- og viðhaldskostnað með því að smíða skip sín úr trefjaplasti í stað stáls. Þetta segir Andri Þór Gunnarsson hjá fyrirtækinu Infuse, sem ásamt fyrirtækinu Ausus framleiðir efni í trefjabáta. Fyrirtækin eru meðal þeirra sem kynna hugmyndir sínar á Sjávarútvegssýningunni í Smáranum um þessar mundir. „Sjávarútvegurinn mundi hagnast mikið á því að fara að byggja stóru skipin alfarið úr trefjaplasti,“ segir Andri. „Það hefur sýnt sig í ótal rannsóknum að þau eru miklu eyðslugrennri, og þess vegna miklu betri fyrir umhverfið, og tærast náttúrulega ekki neitt.“ Þá séu þau betur einangruð sem geri það að verkum að þurrara og notalegra er um borð. Reynsla af dönsku trefjaplastsherskipi sýni að viðhaldskostnaður sé 80 prósentum lægri. Andri segir að kostnaðurinn við smíðina sé um fimmtungi hærri en það borgi sig upp á þremur til fjórum árum. Andri nefnir dæmi af Íslendingum sem hafi skipt fjögurra tonna stýrishúsi á bát sínum út fyrir annað úr trefjaplasti sem er þrjátíu fermetrum stærra en vó innan við 1.700 kíló. Þá sé fyrirtækið Seigla á Akureyri að byggja heilt skip úr trefjaplasti. Infuse og Ausus eru einnig með til kynningar á sýningunni fjölnota bát með einingum í skutnum sem hægt er að skipta út og breyta þannig bátnum á stundarfjórðungi, til dæmis úr rækjuveiðibát í farþegaferju eða rannsóknarskip.- sh
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Sjá meira