Jafnvel skipin lyfta sér á kreik við þjóðhátíðarlög 21. júlí 2011 06:00 Tímamót urðu í Eyjum í gær þegar heimamenn gátu litið skipsbotn á þurru landi í fyrsta sinn frá því Gandí endastakkst í skipalyftunni árið 2006. mynd/óskar friðriksson
Skipalyftan í Vestmannaeyjum var tekin í notkun á nýjan leik í gær, eftir fimm ára hlé, þegar Kap II var hífður upp. Árið 2006 slitnuðu vírar þegar verið var að hífa Gandí VE svo skipið endastakkst ofan í skipalyftuna sem bar ekki barr sitt eftir það fyrr en í gær. Það er Vestmannaeyjahöfn sem rekur lyftuna en einungis eitt tilboð barst í rekstur hennar og var því hafnað. Elliði Vignisson bæjarstjóri var að vonum ánægður með þennan áfanga og sagði það ótækt að stærsta verstöð landsins þyrfti að senda skip sín annað til botnhreinsunar, öxuldráttar og annars viðhalds. „Þessi ár meðan lyftan lá niðri er eina tímabilið í sögu bæjarins þar sem ekki var slippur hér í Eyjum,“ segir hann. Kap II þurfti reyndar ekki á neinu viðhaldi að halda í gær. „Nei, alls ekki. Hér er bara svo mikið stuð, allir að hlusta á þjóðhátíðarlögin svo jafnvel skipin lyfta sér á kreik,“ sagði bæjarstjórinn en vart heyrðist í honum fyrir þjóðhátíðarsöngli þegar Fréttablaðið náði í hann. Hann þarf þó ekki að kvíða verkefnaskorti hjá mönnum við skipalyftingar því nú þegar bíða ellefu skip eftir að botn þeirra verði tekinn í gegn. - jse
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira