Aðsóknarmet slegið í Seattle 27. október 2011 14:15 Sýningarrými merkisins Vík Prjónsdóttir. „
Aðsóknin og umfjöllunin um sýninguna er framar öllum okkar vonum. Við bjuggumst við að fá 5.000 gesti í heildina en sá fjöldi kom í fyrstu vikunni," segir Ilmur Dögg Gísladóttir hjá Norræna húsinu. Hún vísar þar til Norræna tískutvíæringsins sem haldinn er í Seattle og sýningarinnar Looking Back to Find our Future í Norræna sögusafninu í borginni. „Sýningin er að slá öll aðsóknarmet. Fyrstu vikuna borguðu 4.626 einstaklingar sig inn á sýninguna og er það 200 prósenta fjölgun á heimsóknum í safnið vegna sýninga," upplýsir Ilmur og bætir við að sýningin hafi einnig fengið gríðarlega mikla umfjöllun bæði í Seattle og á alþjóðlegum vefum sem fjalla um listir og hönnun. Sýningin, sem fjallar um norræna fatahönnun, er sett upp líkt og listsýning. Henni er haganlega komið fyrir í annarri sýningu í safninu sem nefnist Dream of America og fjallar um líf norrænna landnema í Seattle við upphaf 19. aldar. Norræna sögusafnið er á þremur hæðum og breiddi sýningin úr sér á allar hæðir. Á fyrstu hæð var sambræðingur fortíðar og nútíðar þar sem nútíma hönnun var blandað inn í fasta sögusýningu. Á annarri hæð voru innsetningar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi og á þeirri þriðju voru Henrik Vibskov, Sandra Backlund, Ivana Helsinki, Moods of Norway og Steinunn Sigurðardóttir með innsetningar í sýningarrýmum sem eru tileinkuð Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Íslandi. En hvernig stendur á þessum mikla áhuga á sýningunni? „Það er ekki gott að segja. Hún var vissulega vel kynnt og haldin var ráðstefna tengd sýningunni og tveir utandagskrárviðburðir í verslunarmiðstöð og listagalleríi þannig að við náðum til breiðs hóps. Samt hefur aðsóknin komið okkur mjög á óvart," segir Ilmur. Sýningin stendur til 14. nóvember en minni útgáfa af henni verður sett upp í Scandinavian House í New York í mars 2012. Hrafnhildur Arnardóttir mun einnig setja saman þá sýningu enda byggir hún á Seattle-sýningunni. solveig@frettabladid.isÁ myndinni til vinstri eru föt eftir Rain Dear og hundur eftir Hildi Yeoman. Til hægri er innsetning Steinunnar en bæði föt gínunnar og fötin á snúrunni eru eftir hana.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Vara við snörpum hviðum Veður Fleiri fréttir Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Umferðarslys við Víðidal Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Sjá meira