Gærdagurinn á Alþingi 18. september 2011 16:00
Á síðasta degi þingsins í gær voru samþykkt ný sveitarstjórnarlög, ný lög um greiðsluþjónustu og lög um breytingar á lögum um lífeyrissjóði, svo aðeins fátt eitt sé nefnt en alls voru tuttugu lagabálkar samþykktir. Ný sveitarstjórnarlög sem samþykkt voru í gær fela ekki sér neinar meiri háttar breytingar á íslenska sveitarstjórnarstiginu. Flestir kaflar frumvarpsins byggja því á ákvæðum gildandi laga en ákveðnir kaflar frumvarpsins fela þó í sér miklar breytingar en þar er helst um að ræða ákvæði um fjármál sveitarfélaga, eftirliti með fjármálum þeirra, samvinnu sveitarfélaga, samráði við íbúa og stjórnsýslueftirlit. Þá var í gær samþykkt frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu en samkvæmt gildandi lögum voru ráðuneytin talin upp í lögunum. Í frumvarpi forsætisráðherra er gert ráð fyrir að þetta verði aflagt. Einungis forsætisráðherra er nefndur í lögunum og hann gerir síðan tillögu um önnur ráðuneyti, en þau mega samkvæmt hinum nýsamþykktu lögum flest vera tíu talsins. Samkomulag náðist í þinginu um orðalagsbreytingar á frumvarpinu en samkvæmt þeim þarf forsætisráðherra að fá samþykki Alþingis fyrir breytingum á fjölda og heitum ráðuneyta. Þá öðlaðist lagagildi í gær fyrsti heildstæði lagabálkurinn um greiðsluþjónustu, en um er að ræða innleiðingu á tilskipun Evrópusambandsins um sama efni. Greiðsluþjónusta nær yfir ýmislegt annað en notkun greiðslukorta en sem dæmi má nefna að millifærslur í heimabönkum og peningasendingar munu falla undir lögin. Eitt af markmiðum tilskipunarinnar er að efla réttarstöðu neytenda, með því að skýra leikreglur innan Evrópska efnahagssvæðisins að því er varðar greiðsluþjónustu. Þá voru í gær samþykktar breytingar á lögum um lífeyrissjóði sem fela í sér heimildir fyrir lífeyrissjóði til að eiga og reka íbúðarhúsnæði en í gildandi lögum var lagt blátt bann við fjárfestingu lífeyrissjóða í fasteignum nema það væri nauðsynlegt vegna starfsemi sjóðanna. Í frumvarpinu sem samþykkt var í gær er undanþága frá því þegar um íbúðarhúsnæði er að ræða en með þessu er lífeyrissjóðum gert kleift að gera samninga við leigumiðlanir um útleigu íbúða eða stofna sjálfir félög í þeim tilgangi. Jafnframt voru í gær samþykkt lög um húsnæðismál sem gera Íbúðalánasjóði kleift að bregðast við breyttum aðstæðum á íbúðamarkaði og stuðla tímabundið að auknum framkvæmdum í byggingariðnði með því að liðka fyrir útlánum sjóðsins til endurbóta og breytinga á fasteignum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira