Stefna VG harðlega gagnrýnd 9. júní 2011 07:00 gagnrýninn Bjarni Benediktsson sagði utanríkisstefnu Vinstri grænna einkennast af hentisemi.fréttablaðið/anton
Stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálum var harðlega gagnrýnd á Alþingi í gær í utandagskrárumræðu um stuðning Íslands við aðgerðir Nató í Líbíu. Athygli vakti að hvorki Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, né Ögmundur Jónasson, sem oft hefur tjáð sig um álíka efni, sáu ástæðu til að taka þátt í umræðunni. Bjarni Benediktsson var málshefjandi og sakaði hann Vinstri græn um hentisemi í utanríkismálum. Flokkurinn hefði greitt fyrir stuðningi við aðildarumsókn að Evrópusambandinu, en styddi síðan aðgerðir Nató í Líbíu, með þögn sinni og aðgerðaleysi innan ríkisstjórnar. Fleiri stjórnarandstæðingar hjuggu í sama knérunn og sögðu málflutning flokksins lítt trúverðugan. Hann hefði getað komið í veg fyrir stuðninginn hefði verið vilji til þess, ekki síst vegna þess að ákvarðanir Nató um slík efni þyrftu að vera einróma. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði vinstri græn hafa gert grein fyrir andstöðu sinni við aðgerðirnar, bæði í ríkisstjórn og á Alþingi. Hann sagði ákvörðun sína um stuðning hafa byggt á þeirri staðreynd að þingmeirihluti væri fyrir aðgerðunum. Árni Þór Sigurðsson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir voru einu fulltrúar vinstri grænna sem tóku til máls og sögðu stefnu flokksins skýra, hann væri friðarins flokkur.- kóp
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Sæti Artúrs logar Erlent Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Erlent Fleiri fréttir Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Sjá meira