Síðustu þorpin gætu þurft að bíða lengi eftir malbikinu Kristján Már Unnarsson skrifar 9. júní 2011 18:38
Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur stefna í að verða síðustu þéttbýliskjarnar á Íslandi, ásamt Borgarfirði eystra, til að tengjast öðrum landshlutum með bundnu slitlagi. Ráðherra vegamála gat engu svarað á Alþingi um hvernig vegamál staðanna á sunnanverðum Vestfjörðum verða löguð. Byggðarlög allt í kringum landið hafa hvert af öðru á undanförnum árum fagnað þeim tímamótum að tengjast vegakerfinu með nútímavegi. Þannig gleðjast Vopnfirðingar síðar í sumar þegar þeir losna við síðustu sautján malarkílómetrana, en um leið tengist Bakkafjörður hringveginum með slitlagi. Á Vestfjörðum fá Drangnesingar brátt ástæðu til að fagna en vinna við síðustu fimm kilómetrana þangað er að hefjast í botni Steingrímsfjarðar. Með þessum áföngum sitja aðeins fjórir þéttbýlisstaðir eftir án malbiksstengingar; Borgarfjörður eystri, með 35 kílómetra gat, og svo vestfirsku þorpin þrjú, Bíldudalur, Tálknafjörður og Patreksfjörður, sem búa við 69 kílómetra langa malarkafla. Suðaustanlands vantar enn sjö kílómetra upp á að Breiðdælingar og aðrir Austfirðingar komist suðurleiðina til Reykjavíkur á slitlagi. Íbúar Þingeyrar eru kannski verst staddir, geta þó komist bakaleiðina um Ísafjörð á malbiki, en þurfa annars að þola 137 kílómetra langa malarkafla á þeim vegi sem eðlilegast væri að aka til Reykjavíkur. Stöðunni á sunnanverðum Vestfjörðum lýsti sjálfstæðismaðurinn Einar K. Guðfinnsson á Alþingi í gær sem mestu sorgarsögu í uppbyggingu vegamála á Íslandi á undanförnum árum. "Hér er gríðarlega mikið í húfi, hvorki meira né minna en framtíð byggðanna á sunnanverðum Vestfjörðum," sagði Einar. Og spurði ráðherra vegamála um hvernig hann ætlaði að leysa pattstöðuna sem ríkir um veginn um Ódrjúgsháls vegna deilna um nýtt vegstæði um Teigsskóg og yfir tvo firði. Ögmundur Jónasson vegamálaráðherra kvaðst vilja leysa málið í sátt: "Ég hef í hyggju að halda vestur þegar þingi lýkur og vinna að því að koma þessu máli á réttan rekspöl," sagði ráðherrann. "Mér heyrist á þessu að nákvæmlega ekkert sé að gerast í sambandi við vegagerð á þessu svæði," voru viðbrögð þingmannsins við svari ráðherrans.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira