Segjast dafna betur og basla minna 14. nóvember 2011 11:30
Miklu fleiri Íslendingar segjast nú dafna og miklu færri vera í basli en fyrir ári. Þetta kemur fram í könnun Capacent sem ætlað að varpa ljósi á líðan íslensku þjóðarinnar. Niðurstöðurnar eru birtar í tímariti Capacent, Straumum. Þátttakendum í könnunninni er skipt í þrjá hópa. Í fyrsta hópnum eru þeir sem „dafna", það er fólk sem metur líf sitt gott í augnablikinu og sér fyrir sér að það verði jafn gott eða betra eftir fimm ár. Í næsta hópi eru þeir sem eru „í basli"; telja stöðu sína annað hvort ekki góða í augnablikinu eða er svartsýnt á stöðuna eftir fimm ár. Þriðji hópurinn er fólk í „þrengingum"; það gefur lífi sínu í dag lága einkunn og sjá ekki fram á betri tíma eftir fimm ár. Miðað við sams konar mælingu um miðjan október í fyrra hefur þeim sem Capacent segir „dafna" og setur í fyrsta flokk fjölgað úr 43,5 prósentum í 65,4 prósent. Það er hæsta gildið síðan þessar mælingar hófust á fyrra hluta síðasta árs. Þeim sem teljast vera í basli hefur að sama skapi fækkað mjög mikið, úr 53,2 prósentum í 32,3 prósent. Í síðasta flokkinn setur Capacent nú 2,3 prósent, sem er nálægt því gildi sem mælst hefur að meðaltali. Capacent segir að þótt þróunin sé jákvæð séu mælingarnar sveiflukenndar. „Mat Íslendinga á lífi sínu virðist vera nokkuð brothætt og verða fyrir áhrifum af atburðum í umhverfinu," segir Capacent. - gar
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Innlent Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Sjá meira