Kirkjukórar hætta að syngja vegna þreytu 14. nóvember 2011 06:00 Í apríl 1998 var engin mannekla í kirkjukór Hvalsneskirkju. Síðasta karlsöngvarinn hætti hins vegar 2004 og konurnar sem nú voru eftir orka ekki meir. Myndir/Reynir Sveinsson „
Þetta var orðin kvöð og við eiginlega gáfumst bara upp," segir Margrét Böðvarsdóttir, formaður kirkjukórs Hvalsnessóknar sem nú er hættur að syngja við guðsþjónustur í Sandgerði. Kirkjukórinn í Útskálasókn í Garði hætti líka á sama tíma. Margrét segir ástæðurnar nokkrar. Fyrst og fremst hafi þó ráðið mannekla og að meðlimir kóranna hafi verið orðnir langþreyttir. Síðasti fasti karlsöngvarinn í Hvalsneskórnum hafi hætt 2004 og þar séu aðeins níu konur eftir, sem flestar séu um fimmtugt og yfir sjötugt. Þegar best lét hafi verið 25 manns í kórnum, þar af fimm karlar. Í Útskálasókn sé svipuð staða þótt þar sé einn karl í kórnum. Ekkert hafi gengið að fá nýja meðlimi í kórana enda kæri sig fæstir um þá bindingu sem felist í því að syngja í messu aðra hverja helgi og við aðrar athafnir. „Kórstjórinn hefur þurft að vera að snapa saman körlum, hann reddaði þeim oftast nær úr Keflavík," segir Margrét, sem segir kórana tvo hafa hjálpast að og meðal annars verið með sameiginlegan kór fyrir jarðarfarir. Margrét játar að það hafi verið mikil viðbrigði þegar kórinn hætti í október. Sjálf hafi hún verið í tuttugu ár í kórnum og sumar miklu lengur. „Jólin verða skrítin en maður fer þó auðvitað í messu," segir Margrét, sem kveður jóla- og aðventusálmanna einmitt hafa verið sitt uppáhald. Margrét segist vonast til að eitthvað rætist úr söngmálum í Hvalsnessókn. „Vonandi vekur þetta einhvern til umhugsunar. Ef fleira fólk hefði komið í kórinn hefðum við flestar haldið áfram. Vonandi gerist það. Það er ekki öll nótt úti enn," segir hún vongóð. Reynir Sveinsson, formaður sóknarnefndar Hvalsneskirkju, segir málið meðal annars tengjast ört minnkandi tekjum sóknanna tveggja. Ekki aðeins sé kórinn í Hvalsnessókn hættur heldur hafi verið nauðsynlegt að segja organistanum upp. Þó sé ekki fokið í öll skjól fyrir söngelska Sandgerðinga þótt bæði organistinn og kórinn séu á braut. „Við erum með mjög fjölhæfan prest sem getur tekið í gítar í hvaða athöfn sem er." Séra Sigurður Grétar Sigurðsson er sameiginlegur prestur fyrir sóknirnar tvær. Tónlistarmálin í sóknunum tveimur eru ekki útrædd. Til dæmis verður málið á dagskrá almenns safnaðarfundar í Útskálakirkju í kvöld. „Hvað viljum við sjá? Kirkjukór, hljómsveit, einsöngvara, almennan söng, engan söng, allt þetta, ekkert af þessu?" er spurt í fundarboði. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Innlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Fleiri fréttir Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Sjá meira