Íslenskar vörur oft ódýrari í krónum talið 14. nóvember 2011 05:00 Sé vöruverði á Norðurlöndum breytt í íslenskar krónur kemur í ljós að íslenskar vörur eru oft ódýrari. fréttablaðið/heiða
Íslenskar landbúnaðarvörur eru oft ódýrari hér á landi en aðrar landbúnaðarvörur á Norðurlöndunum sé verðinu breytt í íslenskar krónur. Hafa ber í huga að tölurnar eru ekki kaupmáttarleiðréttar, en kaupmáttur hefur rýrnað hér á landi á síðustu árum á meðan hann hefur aukist á Norðurlöndunum. Bændasamtökin gerðu verðkönnun á landbúnaðarvörum í fimm verslunum á Norðurlöndunum um miðjan október síðastliðinn með aðstoð starfsmanna bændasamtaka viðkomandi landa. Frá þessu er greint í Bændablaðinu, en þar segir að í ljós hafi komið að íslenskar afurðir eru samkeppnisfærar við vöruverð í hinum Norðurlandaríkjunum. Kannað var verð á léttmjólk, 17 prósenta osti, smjöri, svínakótelettum, heilum kjúklingi, nautahakki, eggjum, kartöflum og tómötum. Verslanirnar sem bornar voru saman eru Bónus, Netto í Danmörku, Rema í Danmörku, Ica Kvantum í Svíþjóð og Remi í Noregi. Léttmjólk reyndist ódýrust á Íslandi en langdýrust í Noregi og ostur var ódýrastur í Svíþjóð. Íslenska smjörið var ódýrast, en nýsjálenskt og þýskt smjör í verslunum í Danmörku reyndist dýrast. Ódýrustu kartöflurnar voru í Bónus í 1,5 kílóa pakkningum og íslensku tómatarnir einnig. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Bændasamtökunum, segir verðin sýna að ekkert bendi til þess að vöruverð lækki hér ef frekari innflutningur á erlendum landbúnaðarvörum yrði. Bændasamtökin gerðu ekki sambærilega verðkönnun fyrir gengishrun íslensku krónunnar. - sv
Mest lesið Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Innlent Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Lést í sprengingunni Innlent Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Erlent Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Erlent Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Innlent Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Innlent Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent Fleiri fréttir Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Nýsköpun, kjarasamningar og afnám áminningarskyldu Fáskrúðsfjarðargöngum lokað vegna umferðaróhapps Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Sjá meira