Lyf í verslanir og frjálsari auglýsingar 14. nóvember 2011 07:00 Hagsmunaaðilar telja að leyfa eigi sölu á ólyfseðilsskyldum lyfjum í venjulegum stórmörkuðum til að auka aðgengi. mynd/úr safni
Hagsmunaaðilar á lyfjamarkaði vilja að heimilt verði að auglýsa lausasölulyf í sjónvarpi og sala á lyfjum verði leyfð í almennum verslunum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri greiningu Félags atvinnurekenda, Frumtaka og Samtaka verslunar og þjónustu, þar sem hinar ýmsu tillögur um breytingar á íslenska lyfjamarkaðnum eru lagðar fram. Í skýrslunni segir að rannsóknir hafi sýnt að auglýsingar í sjónvarpi hafi hvetjandi áhrif á einstaklinga til að leita sér frekari upplýsinga um lyf eða eigið heilsufar. Á móti komi þó að sjónvarpsauglýsingar leiði ekki endilega til aukinnar sölu á lyfjum og geti leitt til minni notkunar á lyfseðilsskyldum lyfjum. Einnig sé hætta á að röng og óþörf notkun aukist með aukinni notkun á þeim lyfjum sem auglýst séu. Önnur tillaga tengd auglýsingunum er að heimilt verði að nota efsta stig lýsingarorða við markaðssetningu, ef hægt er að rökstyðja með sölutölum að eitthvað sé „mest selt“ eða vinsælast. Slíkt er óheimilt í dag við auglýsingu lyfja. Móttökin við því eru að framleiðendur gætu þá notað fullyrðingarnar út frá sinni skilgreiningu á markaðsstærð sem væri á skjön við skilgreiningar samkeppnisaðila og gæti því skapað ágreining. Varðandi heimild sölu á lausasölulyfjum í almennum verslunum kemur fram að þar með verði aðgangur að lyfjunum greiðari fyrir ferðamenn á landsbyggðinni og gæti leitt til lækkunar á verði vegna aukinnar samkeppni. Þó muni fagleg ráðgjöf til almennings minnka og því verði aukin hætta á rangri og hættulegri notkun. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra fékk tillögurnar afhentar á mánudag. Hann sagðist ánægður með frumkvæðið og farið yrði yfir hugmyndirnar í ráðuneytinu. Einar Magnússon, lyfjamálastjóri hjá velferðarráðuneytinu, tekur undir orð ráðherra og segir greininguna falla ágætlega inn í þá vinnu sem sé að hefjast varðandi endurskoðun á lyfjastefnu. Með greiningunni vilja hagsmunaaðilarnir draga fram þætti sem þeir telja nauðsynlegt að breyta til að auka samkeppni og skilvirkni og bæta starfsumhverfi á lyfjamarkaðinum. Um 120 breytingartillögur eru lagðar fram í skýrslunni. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Fleiri fréttir Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Sjá meira