TF Sif fann hátt í 40 flóttamenn - smyglarar handteknir 14. nóvember 2011 11:15 TF Sif. Mynd Daníel
Í eftirlitsflugi Sifjar, flugvélar Landhelgisgæslunnar aðfaranótt föstudags, fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins, greindist í eftirlitsbúnaði flugvélarinnar grunsamlegur bátur sem staðsettur var 16,6 sjómílur suðaustur af Otranto, í Pugliu á Ítalíu. Á þaki bátsins sást uppblásinn slöngubátur og ofan þilja nokkrar persónur, þ.a.m. börn. Opinn hleri var á bátnum og sýndi hitamyndavél flugvélarinnar að talsverðan hita lagði út um opið. Vaknaði því grunur um að fjöldi fólks væri neðan þilja. Haft var samband við tengilið Landhelgisgæslunnar í stjórnstöð Frontex í Róm og var strax ákveðið að senda varðskip í veg fyrir bátinn. Var ítalskt varðskip staðsett í um 10 sjómílna fjarlægð frá bátnum og hélt það samstundis á vettvang. Við rannsókn þeirra um borð kom í ljós að í bátnum voru 37 flóttamenn, 27 fullorðnir karlmenn og 10 drengir. Engar konur eða stúlkubörn. Einnig voru um borð tveir skipuleggjendur smyglsins, Rússi og Úkraínumaður. Voru þeir handteknir og fluttir til hafnar á Ítalíu. Flóttafólkið var frá Pakistan, Afganistan, Bangladesh og Sri Lanka.og samkvæmt fulltrúa Landhelgisgæslunnar í stjórnstöð, var þeim bjargað um borð í varðskipið og fluttir til hafnar á Ítalíu þar sem þeir dvelja í flóttamannabúðum þar til ákvörðun verður tekin um framhaldið. Á stöðufundi stjórnstöðvarinnar var sérstaklega rætt um góða samvinnu og samskipti milli áhafnar flugvélarinnar, stjórnstöðvarinnar í Róm og ítalska varðskipsins. Landhelgisgæslan hefur frá því í júní tekið þátt í verkefnum Frontex, með varðskipinu Ægi samfleytt frá júní-október en flugvélinni Sif, með hléum frá sama tíma. Varðskipið Ægir kom aftur til Íslands fyrir um viku síðan eftir að hafa tekið þátt í fjöldamörgum björgunaraðgerðum þar sem samtals 495 flóttamönnum var bjargað um borð og fluttir til hafnar með varðskipinu Ægi eða öðrum björgunarskipum á svæðinu, þar af voru 272 í alvarlegum lífsháska. Megintilgangur með eftirliti Frontex er landamæragæsla en óhjákvæmilega þróast verkefnin oft á tíðum yfir í að verða björgunaraðgerðir. Á sjó stafar það m.a. af því að fólkið er á illa útbúnum fleytum sem ekki eru ætlaðar til lengri siglinga enda er skipuleggendum smyglsins í raun sama um örlög flóttafólksins eftir að þeir hafa fengið fargjaldið greitt. Í upplýsingum frá Frontex kemur fram að Alþjóðasiglingamálastofnunin (á ensku: IMO sem stendur fyrir International Maritime Organization) tekur árlega saman upplýsingar um björgunaraðgerðir á hafinu en þar segir að á árinu 2010 hafi tæki á vegum Frontex bjargað 98 % af öllum þeim sem bjargað var á sjó í heiminum. Samkvæmt því má segja að mannúðarstarf sé viðamikill þáttur í starfsemi Frontex.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Fleiri fréttir Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Sjá meira