Kaldasti júlímánuður í fimm ár, sá fjórtándi hlýjasti frá 1871 3. ágúst 2011 21:30
Meðalhiti í Reykjavík var 12,2 stig í nýliðnum mánuði og er hann kaldasti júlímánuður í fimm ár, samkvæmt mælingum Veðurstofunnar. Þrátt fyrir það var meðalhitinn á landinu yfir meðallagi júlímánaða á nokkrum síðustu áratugum síðustu aldar eða frá árinu 1961 til 1990. Hins vegar hefur verið mjög hlýtt í júlí undanfarin ár og þessi júlímánuður var sá kaldasti frá 2006 en engu að síður í fjórtánda hlýjasta sæti frá því að mælingar hófust á Íslandi árið 1871. Meðalhiti í Reykjavík var tólf komma tvö stig en það er tæpum tveimur stigum yfir meðallagi. Meðalhiti á Akureyri var tólf stig, sem var rúmlega einu stigi yfir meðallagi. Meðalhitinn í júlí var hæstur í Hvalfirði en þar mældist hann tólf komma sex stig og var næsthæstur á Hafnarmelum. Lægsti meðalhitinn var hins vegar á Brúarjökl en lægsti meðalhitinn í byggð var Kambanesi þar sem hann mældist sjö komma sjö stig. Hitametið á landinu í júlí var þó slegið á Húsavík, þar sem hitinn fór upp í tæp tuttugu og fimm stig þann tuttugusta og sjöunda júlí. Annars var þurrviðrasasmt á Norður- og Vesturlandi í júlí og kaldast á Austfjörðum og austast á Suðausturlandi, en hlýjast var á Vestfjörðum. Ef litið er til meðaltalsins hefur verið hlýtt á landinu fyrstu sjö mánuði ársins. Meðalhiti í Reykjavík var fimm komma tvö stig sem er tæpu einu stigi ofan meðaltalsins frá árinu 1961 til 1990, en ögn kaldara en meðaltalið 2001 til 2010. Á Akureyri er hitinn fyrstu 7 mánuði ársins nú einu stigi ofan meðaltalsins 1961 til 1990. Júnímánuður var hins vegar sá kaldasti frá árinu 1952 á Akureyri og aðeins tveir aðrir júnímánuðir hafa verið kaldari frá því að mælingar hófust á Akureyri árið 1881.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira