Ætlað tap Seðlabankans á sölu FÍH nemur heildarútgjöldum til vegamála 3. ágúst 2011 19:15
Seðlabanki Íslands gæti tapað um tuttugu og tveimur milljörðum króna á hruni hlutabréfa í danska skartgripafyrirtækinu Pandóru í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Það jafngildir heildarútgjöldum ríkissjóðs til vegamála á síðasta ári. Sama dag og neyðarlögin voru sett í miðju bankahruni veitti Seðlabanki Íslands Kaupþingi 500 milljóna evra neyðarlán. Seðlabankinn tók veð í danska bankanum FIH sem tryggingu og var FIH bankinn seldur í fyrra til danskra lífeyrissjóða og sænskra fjárfesta. Þá fékk Seðlabankinn 255 milljónir evra upp í kröfu sína á hendur Kaupþingi, eða rétt um helming. Í samningnum var ákvæði um að Seðlabankinn gæti fengið aukalega allt að 1,9 milljarða danskra króna, jafnvirði 415 milljóna evra, út er fjárfestingarsjóðnum Axcel sem FIH á hlutdeild í. Stærsta eign sjóðsinsins er hlutur í skartgripafyrirtækinu Pandóru en slæmu tíðind eru að síðan um áramót hafa hlutabréf í Pandóru hríðfallið eða um 80 prósent. Miðað við breytingar á verðmæti skartgripafyrirtækisins gæti tap Seðlabankans numið allt að 22 milljörðum króna en þess má geta að það jafngildir heildarútgjöldölum íslenska ríkisins til vegamála á síðasta ári samkvæmt ríkisreikningi. Í umfjöllun um málið á dönsku vefsíðunni Finanswatch segir að núverandi eigendur FIH hafi ekki stórar áhyggjur af þessu tapi þar sem reikningurinn fyrir það verði sendur til Seðlabanka Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum mun endanlegt verðmæti vegna sölunnar á FIH og þar með Axcel sjóðnum ekki liggja fyrir fyrr en í lok áranna 2014 og 2015. Bankinn geti því ekki verið að leggja opinberlega mat á hugsanlega útkomu af sölunni út frá stöðu og hreyfingum á mörkuðum hverju sinni. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira