Vegfarendur geta keyrt áhyggjulausir um Oddskarðsgöng 3. ágúst 2011 17:50 Oddskarðsgöng liggja á milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar.
Vegagerðin telur að öryggi vegfarenda í Oddsskarðsgöngum sé ekki sérstaklega ógnað vegna hugsanlegs grjóthruns. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Vegagerðin sendi frá sér í dag, en matið byggir á ástandi bergsins og reynslu fyrri ára. Í tilkynningunni er sú staðreynd undirstrikuð að net taki við grjóthruni á svæðinu, sem þó sé ólíklegt að verði á annað borð. Þrátt fyrir að tveir stærri steinar hafi fallið úr lofti Oddskarðsganga í vor, sé ekki hætta af slíku grjóthruni í göngunum. Öryggisnet grípi þá steina sem kynnu að falla, og það hafi verið tilfellið í áðurnefndu steinahruni. Vegagerðin tekur það fram að auk sérstakrar skoðunar í kjölfar atviksins síðastliðið vor sé svæðið reglulega skoðað, og hvergi hafi komið í ljós los á stærri steinum. Ítarlegri úttekt verði einnig gerð fljótlega þar sem kannað verður hvort þörf er á frekari styrkingum eða netvörnum. Þá segir að lokum: „Oddsskarðsgöng voru opnuð 1977 og aldrei hefur orðið hrun í þeim sem hefur ógnað vegfarendum. Á afmörkuðum stöðum hafa losnað og hrunið smærri steinar en netið í loftinu tekur við þeim, þetta hefur ekki verið meira áberandi í sumar en fyrri ár."
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira