Gleymdist að setja viðurlög 18. janúar 2011 05:45 Fiskistofa hefur sent fjölda aðila bréf þar sem viðurlög við ólöglegum framkvæmdum við ár og vötn eru kynnt. Lengi vel þýddi lítið að kæra brot þar sem það fórst fyrir að tiltaka refsingu við lagasetningu 2006. Mynd/Auðunn Níelsson
Fiskistofa hyggst framvegis ganga hart fram vegna ólöglegra framkvæmda við og í veiðivötnum. Sveitar- og veiðifélög, verktakar og landeigendur hafa um árabil staðið fyrir ýmiss konar framkvæmdum án þess að fá til þess tilskilin leyfi. Handvömm við lagasetningu árið 2006 varð til þess að til lítils hefur verið að kæra slíkar framkvæmdir en úr því var bætt með lagasetningu í árslok 2009. Helsta áhyggjuefnið er stórtæk malartekja úr ám sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðgang fiskistofna. Fiskistofa hefur sent framkvæmdaaðilum, sveitarfélögum og landeigendum bréf þar sem þeir eru minntir á réttindi og skyldur í lögum og reglum um lax og silungsveiði. Tilefnið er að sumarið 2010 urðu eftirlitsmenn Fiskistofu víða varir við framkvæmdir í og við veiðivötn sem í mörgum tilfellum voru án lögboðinna leyfa. Þar hafa sveitarfélög meðal annars verið að verki, en þau bera stjórnsýslulega ábyrgð í þessum málum samkvæmt lögum. Árni Ísaksson, forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, segir að samkvæmt lögum þurfi að leita eftir heimild Fiskistofu vegna allra framkvæmda við ár og vötn. „Það er meiningin að fá menn til að virða lögin en eftir lagabreytingu árið 2009 er þetta refsivert athæfi. Tilgangur bréfsins er að hnykkja á því hvað það þýðir að ganga illa um og framkvæma í leyfisleysi." Bjarni Júlíusson, formaður Stangveiðifélags Reykjavíkur, segir það alltof algengt að farið sé í malarnám í veiðiám eða við þær. Afleiðingarnar geti orðið skelfilegar. „Þegar möl er tekin úr áreyri sem hefur legið óhreyfð í hundruð ára þá er stundum eins og allt breytist. Í næsta flóði eða vorleysingum höfum við séð hundruð tonna af möl fara af stað og jafnvel fylla og eyðileggja veiðistaði sem liggja þar fyrir neðan. Ég hef séð fallega veiðistaði hverfa eftir að þjóðvegur var færður til og það tók veiðistaðinn mörg ár að verða að einhverju aftur." Bjarni segir að ef illa tekst til þá geti hrygning laxfiska misfarist og hrygningarstaðir eyðilagst, en dæmi um slíkt eru þekkt hér á landi. Árni segir það ekki síst tilefni til að minna á lögin að undanfarin ár hefur verið mikil ásókn í möl og framkvæmdaaðilar tilbúnir til að greiða hátt verð fyrir hana. Landeigendur hafi því verið undir miklum þrýstingi frá verktökum og jafnvel opinberum aðilum að selja möl úr áreyrum. Viðurlög vegna ólöglegra framkvæmda við ár og vötn eru greiðsla skaðabóta. - shá
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira