Leita enn gagna vegna Kaupþings í útlöndum Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. mars 2011 00:00 Kaupþing í Lúxemborg Svona voru höfuðstöðvar Kaupþings í Lúxemborg merktar í ársbyrjun 2008, en þar er nú til húsa Banque Havilland. fréttablaðið/BÞS
Lögregla leitaði gagna í þremur fyrirtækjum og á tveimur heimilum í Lúxemborg í gær. Leitirnar voru að beiðni efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar (SFO, Serious Fraud Office) og embættis sérstaks saksóknara á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu sem SFO sendi frá sér í gær. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði lítið hægt að gefa upp um rannsóknina á meðan hún stæði yfir. Hann kvað aðgerðina hins vegar nokkuð umfangsmikla, ljóst væri að aðgerðirnar lögreglu sem hófust í gær myndu að minnsta kosti teygja sig fram til dagsins í dag. Ólafur, sem staddur er úti í Lúxemborg og tekur þátt í aðgerðunum, vildi ekki gefa upp hvort leitað yrði víðar. Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 í gær snýr rannsóknin að 28 milljarða króna láni sem Kaupþing lánaði félagi á Tortóla-eyju sama dag og bankinn fékk 80 milljarða lán hjá Seðlabanka Íslands sem átti að bjarga rekstri Kaupþings. Alls eru sjö starfsmenn embættis sérstaks saksóknara lögreglu í Lúxemborg til aðstoðar, en ámóta margir komu frá SFO í Bretlandi. Í tilkynningu sem embætti sérstaks saksóknara sendi frá sér í gær kemur fram að 55 lögreglumenn frá lögreglunni í Lúxemborg hafi tekið þátt í húsleitunum. Alls koma því um 70 manns að aðgerðunum. Tiltekið er í tilkynningu SFO að húsleitirnar tengist rannsókn á hruni Kaupþings banka, en meðal annars var leitað í fyrrum höfuðstöðvum bankans í Lúxemborg, en þar er nú til húsa Banque Havilland. Í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér er áréttað að leitin tengist ekki bankanum heldur starfsemi Kaupþings banka fyrir daga Banque Havilland. Auk rannsóknar sérstaks saksóknara stendur SFO fyrir sjálfstæðri rannsókn. Fram kemur í tilkynningu sérstaks saksóknara að framkvæmdar hafi verið tvær húsleitir á grundvelli réttarbeiðna frá embættinu. „Aðgerðirnar varða rannsóknir sérstaks saksóknara á málum er tengjast Kaupþingi banka, en sökum þess hve rannsóknirnar eru á viðkvæmu stigi er ekki unnt að gefa nánari upplýsingar um þau mál sem hér um ræðir,“ segir í tilkynningu sérstaks saksóknara. Aðgerðirnar í gær koma í framhaldi af aðgerðum lögregluyfirvalda í Lundúnum og Reykjavík 9. og 10. þessa mánaðar þegar níu manns, þar á meðal fyrrverandi stjórnendur Kaupþings og viðskiptamennirnir Vincent og Robert Tchenguiz, voru færðir til yfirheyrslu vegna lánamála Kaupþings.Ólafur Þór Hauksson
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Sektaður fyrir að aka á göngugötu Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Sjá meira