Síminn vill að símhleranir færist yfir til lögreglunnar 22. desember 2011 10:15 Síminn hefur þá skyldu samkvæmt fjarskiptalögum að aðstoða lögreglu við framkvæmd símhlerana. Starfsmenn fyrirtækisins tengja búnað lögreglu við símkerfi í þessum tilgangi að fengnum dómsúrskurði.
Síminn hefur ritað innanríkisráðuneytinu bréf þar um að fjarskiptafyrirtæki séu losuð undan því að annast tengingar þegar símhleranir eru notaðar við rannsóknir sakamála. Lögregla sjái um málin sjálf. Síminn hf. hefur sent bréf til innanríkisráðuneytisins, þar sem óskað er eftir því að verkefni löglegra símhlerana verði fært alfarið frá fjarskiptafyrirtækjum og til lögreglu. Nauðsynlegur tæknibúnaður verði settur upp í þeim tilgangi. Þetta segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, og bætir við að fyrirtækið sætti sig ekki við að trúverðugleiki þess sé dreginn í efa þegar það hafi alfarið tryggt að verkferlar löglegrar hlerunar séu í samræmi við það sem til sé ætlast. Starfsmenn fjarskiptafyrirtækja njóti ekki sömu réttarstöðu og opinberir starfsmenn og ekki sömu verndar þótt þeim sé skylt að vinna fyrir lögreglu í hlerunarmálum. Áhersla sé lögð á að tryggja þurfi öryggi þeirra. Auk hins skriflega erindis hefur Síminn komið þeirri ósk á framfæri við Póst- og fjarskiptastofnun að lögleg hlerunarverkefni verði alfarið færð frá fjarskiptafélögunum. Tæknilega sé mögulegt að hlerun fari fram hjá lögreglu án þess að starfsmenn fyrirtækjanna komi þar nærri. „Við skiljum svar PFS svo að þar á bæ sé vilji til að finna annan flöt á núverandi fyrirkomulagi,“ útskýrir Sævar Freyr. „Stofnunin óskaði eftir því við Símann að skoðað verði hvernig setja megi upp tækniumhverfi sem geri lögreglu mögulegt að hlera án aðkomu starfsmanna fjarskiptafyrirtækja og það kynnt viðeigandi aðilum.“ Tvö hlerunarmál hjá Símanum hafa verið til umfjöllunar í Fréttablaðinu að undanförnu. Annars vegar var starfsmaður sakaður um að hafa hlerað farsíma fyrrverandi maka. Hins vegar er fyrrverandi starfsmaður Skipta grunaður um að hafa gefið upplýsingar um hleranir út fyrir fyrirtækið. „Hvað varðar fyrrnefnda málið hefur Póst- og fjarskiptastofnun haft það til skoðunar,“ segir Sævar Freyr. „Rannsókn Símans leiddi í ljós að ásakanir um að starfsmaður hefði hlerað ættu ekki við rök að styðjast. Lögregla hefur síðarnefnda málið til rannsóknar. Hún hefur upplýst að þeir sem aðstoði við framkvæmd hlerana hjá Símanum liggi ekki undir grun. Jafnframt hefur hún staðfest við okkur að hún geri ekki athugasemdir við framkvæmd Símans í tengslum við hleranir lögreglu. Við teljum að þeir starfsmenn okkar sem eru tengiliðir lögreglu vegna hlerana hafi sinnt hlutverki sínu af fullri trúmennsku við rannsóknaraðila og fullkomlega í samræmi við þá lagaskyldu sem hvílir á Símanum vegna hlerana.“- jss
Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Sjá meira