Innlent

Þurfa að greiða að fullu kostnað vegna fyrstu tæknifrjóvgunar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Foreldrar munu þurfa að greiða fyrstu meðferð vegna tæknifrjóvgunar að fullu.
Foreldrar munu þurfa að greiða fyrstu meðferð vegna tæknifrjóvgunar að fullu. mynd/ getty.
Barnlaus pör og einhleypar barnlausar konur munu greiða að fullu kostnað vegna fyrstu meðferðar við tæknifrjóvgun frá og með næstu áramótum. Þurfi fólk á fleiri meðferðum að halda greiða Sjúkratryggingar Íslands sem nemur 65% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar fyrir aðra, þriðju og fjórðu meðferð.

Auk þessa er afnumin greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunarmeðferðar hjá pörum eða einhleypum konum sem eiga eitt barn fyrir en hún hefur til þessa numið 15% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá.

Velferðarráðherra hefur sett reglugerð þar sem kveðið er á um þessar breytingar á þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir. Með þeim er áformað að lækka útgjöld sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgana um 30 milljónir króna á ári í samræmi við fjárlög.

Þetta er ekki eini kostnaðarhækkunin í heilbrigðiskerfinu því gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um 5,3%. Komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjald fyrir vitjanir heilsugæslulækna verða óbreytt. Hins vegar hækkar kostnaður vegna sjúkra- iðju- og talþjálfunar, sjúkraflutnings, sjálfstætt starfandi sérgreinalækna og lyfja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×