Líst ljómandi vel á lífeyrissjóðirnir kaupi helming í Landsvirkjun 22. desember 2011 18:30
Stjórnarformanni eins stærsta lífeyrissjóðs landsins líst ljómandi vel á að lífeyrissjóðirnir kaupi allt að helmingshlut í Landsvirkjun á móti ríkinu og telur að þannig vinni allir. Hægt sé að tryggja að lífeyrissjóðirnir selji hlutinn ekki áfram. Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna, segir í nýjasta þætti Klinksins sem birtist á Vísi á morgun að fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóðanna sé ekki upp á marga fiska nú um stundir og gjaldeyrishöftin geri þeim erfitt fyrir. Því fagnar hann hugmyndinni um að sjóðirnir kaupi hlut í Landsvirkjun á móti ríkinu, en fréttastofa hefur fjallað ítarlega um hana að undanförnu. „Mér líst bara alveg ljómandi vel á hana," segir Helgi. „Lífeyrissjóðunum veitir ekki af tækifærum til að fjárfesta og eitt af þeim tækifærum sem oft hafa verið nefnd er einmitt Landsvirkjun." Hann telur að salan á Landsvirkjun gæti falið í sér ávinning fyrir alla sem kæmu að málinu, sérstaklega ef rétt væri að því staðið. Lífeyrissjóðirnir komi peningum í vinnu, ríkissjóður fái peninga í kassann og fjármögnun Landsvirkjunar verði tryggari. „Að mínu mati blasir það við að þetta væri góð lausn fyrir samfélagið allt ef það væri hægt að útfæra sölu á 40-50 prósentum til lífeyrissjóðanna með sérstakri löggjöf. Þeim væri ekki heimilt að selja hlutina út fyrir sinn hóp, eða eingöngu aftur til ríkisins ef þannig stæði á." Hann fagnar því áhuga viðskiptaráðherra á hugmyndinni en efast um að hún nái fram að ganga á meðan Vinstri grænir eiga sæti í ríkisstjórn. Hann bendir þó á að aðeins 16 mánuðir eru eftir af kjörtímabilinu. „Þessi aðgerð er ekki eitthvað sem tekin er skyndiákvörðun um. Ég held að tíminn fram að næstu kosningum sé ágætur til að þróa þessa umræðu og svo sjáum við til hvort Vinstri-grænir verði áfram í ríkisstjórn. Það er ekkert víst."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira