Ekki senda afdankaða þingmenn 7. mars 2011 16:00 Wallis vonar að á Evrópuþinginu verði Sjálfstæðisflokkur hluti EPP, hreyfingar hægri-miðjumanna, frekar en EFD, hægrisinnaðra and-evrópusinna. Sjálf bindur hún vonir við Framsóknarflokkinn til að styrkja raðir sinnar hreyfingar, ALDE. Fréttablaðið/gva
Varaforseti Evrópuþingsins, Diana Wallis, segir þingið stöðugt sækja í sig veðrið og fulltrúar þar hafi æ meiri pólitíska vikt. Áður loddi við þingið að þangað settust stjórnmálamenn í helgan stein. Wallis hélt í liðinni viku fyrirlestur í Háskóla Íslands um áhrif þingmanna smáríkja á Evrópuþinginu. Hún sagði að íslenskir Evrópuþingmenn gætu haft töluverð áhrif á þinginu, enda væru þar ekki greidd atkvæði eftir þjóðerni heldur hugsjónum. Þingmaður frá Íslandi gæti því allt eins verið í meirihluta í Brussel og hver annar fulltrúi. Hún tók fram að hún afþakkaði afdankaða stjórnmálamenn: „Sendið okkur frjálslynda, sendið okkur konur og sendið okkur dugnaðarforka," sagði Wallis, sem sjálf er bresk og tilheyrir hreyfingu Frjálslyndra. Máli sínu til stuðnings vitnaði varaforsetinn í gögn vefsíðunnar Votewatch.eu og taldi upp nokkur afrek þingmanna frá Möltu, Lúxemborg, Kýpur og Finnlandi. „Það er því engin spurning að þingmenn frá smáríkjum geta haft mikil áhrif," sagði hún: Lissabon-sáttmálinn hefði hjálpað til við þetta. Nú leita til Evrópuþingmanna, segir Wallis, Svisslendingar og Bandaríkjamenn og aðrir, til að tryggja samningum sínum við ESB fylgi. Afdrif mála ráðist oft í þinginu. „Þessi ríki eru misvel að sér í lobbíisma. Manni finnst stundum að maður geti ekki hreyft sig í Brussel án þess að ýta við Norðmanni. Þið Íslendingar eigið margt ólært," sagði Wallis. Wallis ræddi nýjar reglur um borgarafrumkvæði, þar sem borgarar ESB geta átt frumkvæði að löggjöf, náist að safna tilskildum undirskriftum. Þetta væri stærra skref í átt til lýðræðis en flest aðildarrík þyrðu sjálf að stíga. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent Þreifa fyrir sér þrátt fyrir boðaðað lokun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira