Vill stöðva aðildarviðræður vegna makríls 5. febrúar 2011 05:00 Richard Benyon og Maria Damanaki stinga hér saman nefjum á fundi ráðherraráðs ESB í desember, þar sem fjallað var um landbúnaðar- og sjávarútvegsmál. Nordicphotos/afp
Umhverfis- og sjávarútvegsráðherra Breta tekur undir með gagnrýnisröddum stjórnarandstöðu þar í landi og segist „alveg sammála“ því að krefjast skuli af Evrópusambandinu að aðildarviðræður Íslands verði stöðvaðar uns leysist úr makríldeilunni, að því er kemur fram á skosku vefsíðunni Press and Journal. Ráðherrann, Richard Benyon, lét þessi orð falla í neðri deild breska þingsins á fimmtudagskvöld, en umorðaði þetta seinna með því að leysa ætti deiluna í viðræðunum sjálfum. Benyon segist hafa rætt málið við Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB, og hafi útgangspunktur umræðunnar verið að það væri „mjög undarleg hegðun hjá ríki að sækja um aðild að klúbbi og brjóta reglur hans áður en það er orðið meðlimur“. Lykilatriði deilunnar er sjálfbær nýting, segir ráðherrann, en aðeins eitt prósent af hrygningu makrílsins fari fram á íslensku hafsvæði. Íslendingar og Færeyingar ættu að „setjast niður og ræða málin frekar en að fara fram einhliða“. Skuggaráðherra Verkamannaflokksins í sjávarútvegsmálum, Tom Greatrex, hafði hafið umræðuna með því að benda á að löndunarbann ESB á makrílafurðum væri óskilvirkt.Hann taldi rangt að hleypa í ESB ríki sem væri að skaða efnahag aðildarríkja. Framtíð margra byggða í Skotlandi væri háð makrílveiðum. - kóþ
Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira