Þú gætir endað uppi allsber 5. febrúar 2011 17:42 „
Það sem Bjarni Ben er að reyna að selja mér hérna er að mér finnst eins og að maður fari út í búð og sér alveg ógeðslega ljótar gallabuxur fyrir 10 þúsund kall, en þær fást núna fyrir 3 þúsund kall, en ég hef engan áhuga á að vera í þeim," sagði Sturla Jónsson, vörubílstjóri, á fundinum í Valhöll í dag. Sturla lét þessi orð falla þegar að fundargestir gátu spurt Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, spurninga eftir ræðu þess síðarnefnda í dag. „Mér finnst hann tala eins og hann sé á launaskrá hjá Hollendingum og Bretum," sagði Sturla áður en Friðrik Sophusson, fundarstjóri, greip frammí og sagði að nú þyrfti hann að fara koma af spurningunni. „Hún er að koma, það eru 15 sekúndur sem eru komnar," svarði Sturla. „Þú ert búinn með 17," svaraði Friðrik honum þá. „Já, truflaðu mig þá ekki meira," sagði Sturla. „Spurningin er: Í fjórða kafla stjórnarskrárinnar, þá ætla ég að athuga, þar sem þú ert á launum hjá íslenska lýðveldinu, hvort þú kunnir ekki 40. og 41. greinina, þetta eru fimm línur. Ég ætla að biðja þig um að fara með þetta fyrir okkur hérna." Bjarni sagði þá: „Sturla, ég er ekki með stjórnarskránna í kollinum." Og Sturla greip frammí: „Þú átt að kunna hana, þú ert á þingi." Bjarni sagði þá: „Þetta er ekki málefnalegt. Ég ætla að segja eitt við þig Sturla, staðan er sú, að takir þú ekki ódýru gallabuxurnar þá gætir þú á endanum staðið uppi allsber," sagði Bjarni og fundargestir klöppuðu.Hægt er að sjá spurningu Sturlu og svar Bjarna Ben í meðfylgjandi myndskeiði.
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira