Ríkisráðsfundur að hefjast 31. desember 2011 09:28 Mynd/GVA
Þingflokkur Vinstri grænna afgreiddi tillögu um breytingar á ríkisstjórn Íslands í gær með níu atkvæðum af tólf, en þrír sátu hjá. Breytingarnar fela í sér að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra og Árni Páll Árnason hverfi úr ríkisstjórn og Steingrímur J. Sigfússon taki við sameinuðu ráðuneyti, en Oddný Harðardóttir verði fjármálaráðherra. Jón Bjarnason lét hafa eftir sér að fundinum loknum að hann væri ósáttur við breytingarnar og hann teldi þær gerðar til að greiða fyrir aðildarumsókn við Evrópusambandið. Hann svaraði því ekki afdráttarlaust hvort hann styddi ríkisstjórnina. Bæði þingflokkur og flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykktu jafnframt breytingarnar, en á flokksstjórnarfundi sögðu 77 já, 18 sögðu nei og 10 skiluðu auðu í leynilegum kostningum. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru umræðurnar á fundinum afar heitar og takmarkaður samhugur um breytingarnar. Nokkrir tugir fólks voru þegar komnir á mælendaskrá við upphaf fundar og lýstu hug sínum eftir því sem honum vatt fram. Bæði munu flokksmenn hafa sett fyrir sig að atvinnumálin færu öll til Vinstri grænna, auk þess sem stuðningsmenn Árna Páls andmæltu brotthvarfi hans. Hann hélt þó ræðu á tíunda tímanum í gær og hvatti flokksmenn til að samþykkja tillögur Jóhönnu Sigurðardóttur um ráðherraskiptin. Á fundinum mun hafa verið rætt að Katrín Júlíusdóttir taki við stjórnartaumunum af Oddnýju Harðardóttur í fjármálaráðuneytinu þegar hún snýr aftur úr barneignarleyfi. Og núna klukkan hálftíu í morgun hefst Ríkisráðsfundur á Bessastöðum þar sem Árni Páll Árnason og Jón Bjarnason láta formlega af embætti og Oddný Harðardóttir tekur við embætti fjármálaráðherra. Við segjum betur frá þessu öllu saman í hádegisfréttum okkar á Stöð 2 og hér á Vísi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira