Skoðun Steingríms á forsetanum: „Ég hef hana fyrir mig“ 31. desember 2011 15:30
Forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna við háborðið í Kryddsíldinni tóku því misvel þegar tilkynnt var um útnefningu á manni ársins 2011 sem í þetta sinn er Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Sigmundur Davíð sagði ýmislegt í orðum Ólafs benda til þess að kosningabarátta hans sé hafin, en Ólafur vildi ekki gefa upp hvort hann ætli sér að bjóða sig fram til fimmta kjörtímabilsins í vor. Að mati Sigmundar talaði Ólafur tiltölulega vel til ríkisstjórnarinnar og einnig til fyrri ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfsstæðisflokksins sem setti neyðarlögin á sínum tíma. Þetta fannst Sigmundi merki um að hann hyggði á áframhaldandi búskap á Bessastöðum. Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins tók enn dýpra í árinni og sagðist halda að hann ætli að bjóða sig fram að nýju. Margrét Tryggvadóttir, Hreyfingunni, sagði hinsvegar að það væri alfarið hans persónulega mál hvort hann bjóði sig fram á ný. „Það er voðalega erfitt að spá í hvað Ólafur Ragnar gerir á hverjum tíma," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Steingrímur J. Sigfússon sagðist taka undir með Margréti: „Það hvarflar ekki að mér að ráðleggja honum, eða hafa skoðun á honum yfirleitt," sagði Steingrímur einfaldlega. Þegar hann var spurður að því hvort hann hefði þó ekki persónulega skoðun á forsetanum svaraði Steingrímur stutt og laggott: „Ég hef hana fyrir mig."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira