Þurfa að greiða að fullu kostnað vegna fyrstu tæknifrjóvgunar Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. desember 2011 14:30 Foreldrar munu þurfa að greiða fyrstu meðferð vegna tæknifrjóvgunar að fullu. mynd/ getty.
Barnlaus pör og einhleypar barnlausar konur munu greiða að fullu kostnað vegna fyrstu meðferðar við tæknifrjóvgun frá og með næstu áramótum. Þurfi fólk á fleiri meðferðum að halda greiða Sjúkratryggingar Íslands sem nemur 65% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar fyrir aðra, þriðju og fjórðu meðferð. Auk þessa er afnumin greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunarmeðferðar hjá pörum eða einhleypum konum sem eiga eitt barn fyrir en hún hefur til þessa numið 15% kostnaðar samkvæmt gjaldskrá. Velferðarráðherra hefur sett reglugerð þar sem kveðið er á um þessar breytingar á þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir. Með þeim er áformað að lækka útgjöld sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgana um 30 milljónir króna á ári í samræmi við fjárlög. Þetta er ekki eini kostnaðarhækkunin í heilbrigðiskerfinu því gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um 5,3%. Komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjald fyrir vitjanir heilsugæslulækna verða óbreytt. Hins vegar hækkar kostnaður vegna sjúkra- iðju- og talþjálfunar, sjúkraflutnings, sjálfstætt starfandi sérgreinalækna og lyfja.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira