Strax orðinn "framúrskarandi leiðtogi“ 23. desember 2011 08:25 Kim Jong Un er sagður fagna þrítugsafmæli á næstunni.
Eftir aðeins fáeina daga í embætti hefur Kim Jong Un þegar verið útnefndur „hinn framúrskarandi leiðtogi" Raunar er talið að hinn ungi sonur Kim Jon Il sem tók við leiðtogaembættinu við lát föður síns á dögunum, muni deila völdunum með hópi háttsettra embættismanna og hershöfðingja. Það kemur þó ekki í veg fyrir að þarlendir fjölmiðlar, sem vitaskuld eru allir á snærum ríkisins, fari í mikla herferð til þess að sannfæra almenning um leiðtogahæfileika mannsins. Þar á bæ er nú yfirleitt talað um Kim Jong Un sem hinn „framúrskarandi leiðtoga" og í leiðara eins stærsta dagblaðs landsins í gær var mælst til þess fólk kalli hann „sá sem kom af himnum". Þá er talið líklegt að hann haldi upp á þrjátíu ára afmæli sitt á komandi vikum. Það er raunar dálítið undarlegt í ljósi þess að vestrænar leyniþjónustur telja að Kim Jong Un sé ekki nema rétt liðlega 25 ára gamall. Það þykir hinsvegar boða mikla gæfu fyrir landið ef svo vel myndi vilja til að hinn nýi leiðtogi fagni 30 ára afmælinu sama ár og faðir hans hefði orðið sjötugur, og afi hans hundrað ára. Afinn, Kim il Sung, faðir Norður Kóreu er enn í miklum metum og ber titilinn Forseti til eilífðarnóns, þrátt fyrir að hafa látist árið 1994.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira