SUS: Augljós pólitísk afskipti af bankasýslu - leggja á hana niður 6. desember 2011 09:47 Davíð Þorláksson er formaður SUS „
Þetta eru 76 milljónir og það er of mikið fyrir eitthvað sem er óþarfi," segir Davíð Þorláksson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Félagið telur að nota hefði átt tækifærið, eftir að forstjóri og stjórn Bankasýslu ríkisins sögðu af sér fyrir skemmstu, til þess að leggja stofnunina niður. Í gær voru nöfn þeirra þrettán sem sóttu um starf forstjórans birt, en athygli vekur að engin kona var á meðal umsækjanda. Davíð segir að það sé töluverður kostnaður sem fylgir rekstri Bankasýslu ríkisins, að minnsta kosti ef litið er til þess sem er verið að skera niður í heilbrigðiskerfinu. Kostnaðurinn við Bankasýsluna sé til að mynda 1/10 af því sem Sinfóníuhljómsveit Íslands kostar. Hann segir að sagt sé að tilgangurinn með stofnuninni sé að koma í veg fyrir pólitískt afskipti í bönkunum. „Það er bara ekki rétt, það eru gríðarleg afskipti þarna sem sannaðist þegar stjórnin sagði öll af sér nýlega." Þá segir Davíð að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafi handstýrt því hvaða eignarhluta hann ætli sjálfur að véla með og hverja þeirra Bankasýslan annist, og nefnir sölu SPKef til Landsbankans. „Það er líka svolítið galin umræða að það eigi að taka allt úr höndum ráðherra og setja í hendur embættismanna, það er vond og ólýðræðisleg þróun, því ráðherrar eru kosnir lýðræðislega. Þó að stjórnmálamenn geta verið vondir er hægt að refsa þeim í næstu kosningun," bendir Davíð á.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Sjá meira