Innlent

Líkamsárás eftir skólaball FB - Óskað eftir vitnum

Ráðist var á 17 ára gamlan pilt með grófum hætti fyrir framan skemmtistaðinn Rubin í Öskjuhlíð aðfaranótt föstudagsins 4. nóvembersíðastliðinn. Pilturinn var að koma af dansleik á vegum Fjölbrautaskólans í Breiðholti þegar árásin átti sér stað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna að árásinni og eru þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um málið vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×