Innlent

Vel á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leita að Svíanum

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag.
Vel á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leita nú að Svíanum sem óskaði eftir aðstoð í gærkvöldi. Eftir að björgunarsveitarmenn fundu bílinn hans nærri Sólheimajökli hefur leitin aðallega farið fram á því svæði.

Í fyrstu var talið að hann hefði gengið Fimmvörðuhálsinn, nú er talið líklegra að hann sé einhversstaðar á Sólheimajökli.

Svíinn er á þrítugsaldri og er talið að hann sé einn á ferð. Ekki er vitað hversu vanur útivistarmaður hann er.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg verður Svíans leitað í alla nótt, en veðrið er nokkuð slæmt á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×