Annir í sjúkraflutningum 10. nóvember 2011 22:07 Sjúkraflug Mýflugs.
Mikið hefur verið að gera í sjúkrafluginu undanfarinn sólarhring, en frá miðnætti til hádegis í dag voru útköllin orðin fimm talsins samkvæmt tilkynningu sem finna má á vefsíðu Mýflugs. Að jafnaði eru útköllin 1-2 á dag, en þess á milli koma dagar þar sem talsvert meira getur verið að gera. Það sem af er nóvember eru komin 15 sjúkraflug, þar af þau fimm sem flogin voru í dag. Nauðsynlegt reyndist að skipta um áhöfn á Akureyri um hádegisbilið áður en fyrri áhöfnin kláraði leyfilegan vakttíma. Flugleið dagsins var: Akureyri-Reykjavík-Egilsstaðir (óskað var eftir flugi til Neskaupsstaðar en þangað reyndist ófært)-Reykjavík-Akureyri-Bíldudalur-Reykjavík-Akureyri-Reykjavík-Ísafjörður-Akureyri. Þegar margar beiðnir berast á stuttu tímabili er þeim ávallt forgangsraðað eftir alvarleika tilfella. Flug á hæsta forgangi eru flokkuð sem F1, en sá útkallsflokkur á við þegar lífshætta er annarsvegar. Alls eru flokkarnir fjórir talsins, F1, F2, F3 og F4, sem er millistofnanaflutningur. Vel gekk að sinna tilfellum næturinnar og urðu engar tafir að ráði. Þann 28. október síðastliðinn urðu einnig óvenju mörgu útköll, eða sex talsins. Fyrsta beiðni dagsins barst kl.09:47 og var ekki búið að sinna öllum tilfellum fyrr en rúmum 10 klukkustundum síðar. Alls voru farin 34 sjúkraflug í október og því er heildarfjöldi útkalla á árinu kominn í 403.
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Fleiri fréttir Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Sjá meira