Mannréttindanefnd skoðar Twitter-mál Birgittu 14. nóvember 2011 16:00 Birgitta Jónsdóttir.
Mannréttindanefnd Alþjóðaþingmannasambandsins hefur tekið mál Birgittu Jónsdóttur til umfjöllunar í kjölfar kröfu bandarískra stjórnvalda um aðgang að persónulegum upplýsingum Birgittu á samskiptamiðlum, þ.m.t. Twitter að því er greinir frá í tilkynningu frá Hreyfingunni. Þar segir að á þingi sambandsins í Bern þann 19. október síðastliðinn hafi ályktun varðandi málið verið samþykkt samhljóða. Í ályktuninni er málið rakið frá janúar 2011 þegar Birgittu barst tilkynning um dómsúrskurð dómstóls í Virginíu þess eðlis að Twitter væri gert að veita bandarískum stjórnvöldum aðgang að persónulegum upplýsingum um hana. Talið er að aðgerðir bandarískra stjórnvalda tengist birtingu myndbandsins Collateral Murder sem Birgitta tók þátt í að framleiða með Wikileaks. Í myndbandinu má sjá bandaríska hermenn skjóta á borgara úr þyrlu í Írak. Í ályktun sambandsins er mannréttindanefndinni falið að halda áfram að vinna í málinu og skila skýrslu um það í mars - apríl 2012. Þá er framkvæmdastjórn sambandsins gert að hafa samband við yfirstjórn bandaríska þingsins, sem og þess íslenska, í því skyni að láta í ljós áhyggjur sambandsins af málinu og óska eftir afstöðu umræddra aðila til þess og hugsanlegrar sakamálarannsóknar á gjörðum Birgittu Jónsdóttur. Á miðvikudaginn kemur mun Birgitta funda með Íslandsdeild Evrópuráðsins málsins vegna málsins. Hér má finna ályktun sambandsins.
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Fleiri fréttir Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent