Móðirin ákærð fyrir manndráp af ásetningi Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. nóvember 2011 18:45
Ung kona sem skildi nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur verið ákærð fyrir manndráp af ásetningi og til vara fyrir að deyða barn sitt í fæðingu. Hún var metin sakhæf og á yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsi. Hún er talin hafa borið ein ábyrgð á dauða barnsins. Það var laugardaginn 2. júlí í sumar sem konan, sem er frá Litháen og var starfsmaður hótelsins, skildi barnið eftir í ruslageymslu við Hótel Frón. Niðurstöður krufningar leiddu í ljós að barnið var á lífi og heilbrigt þegar það fæddist en konan er talin bera ábyrgð á andláti þess. Ákæran var send Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Konan er ákærð fyrir 211. gr. almennra hegningarlaga, þ.e fyrir manndráp af ásetningi og gæti hún því átt yfir höfði sér sextán ára fangelsi. Til vara er ákært fyrir 212. gr. hegningarlaga, þ.e fyrir að hafa deytt barn sitt í fæðingu. Skilyrði 212. gr. er að móðir hafi deytt barn sitt vegna „neyðar, ótta um hneisu eða sökum veiklaðs eða ruglaðs hugarástands" og við því liggur vægari refsing, eða allt að sex ára fangelsi. Það veltur því á sönnunarfærslu ákæruvaldsins hversu þungan dóm konan fær, verði hún fundin sek í málinu. Konan er ein ákærð í málinu og þar með ein talin hafa borið ábyrgð á dauða barnsins. Fyrrverandi sambýlismaður konunnar, sem einnig er frá Litháen og feðraði barnið án þess að hafa vitað af því, er ekki ákærður og hefur fengið tilkynningu þess efnis að hann sé ekki grunaður í málinu. Ákæran verður þingfest innan tveggja vikna. Konan var metin sakhæf af geðlækni en Daníel Pálmason, verjandi konunnar, sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann hygðist leggja fram beiðni um annað sakhæfismat við þingfestingu ákærunnar. Konan dvelst hér á landi og er í farbanni en úrskurður Héraðsdóms þess efnis var ekki kærður til Hæstaréttar. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Barnið með áverka á andliti eftir eggvopn þegar það fannst Móðir sem skildi nýfætt sveinbarn sitt eftir í ruslageymslu við Hótel Frón á laugardag er grunuð um að hafa veitt því áverka í andliti með eggvopni áður en hún kom því fyrir. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar leiddu í ljós að barnið var á lífi og heilbrigt þegar það fæddist en konan er talin bera ábyrgð á andláti þess. 7. júlí 2011 18:45 Líkfundur við Hótel Frón: Vissu ekki að konan væri ólétt Konan sem grunuð er um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við hótel í Reykjavík í gærmorgun er 22 ára gömul og er frá Litháen. Kærasti hennar er enn í haldi. 3. júlí 2011 11:55 Barnslát: Móðirin laus úr gæsluvarðhaldi Litháíska konan, sem ól barn við Hótel Frón um helgina en skildi við það í ruslagámi stuttu seinna, hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta staðfestir verjandi konunnar í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald á sunnudaginn, eftir að barnið fannst látið í ruslagámnum. Hæstiréttur felldi úrskurðinn hins vegar úr gildi. 7. júlí 2011 13:49 Harmleikur á Laugavegi: Munu krefjast farbanns yfir móðurinni Krafist verður farbanns yfir Litháísku konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í Reykjavík á laugardagsmorgun, í héraðsdómi í dag. 7. júlí 2011 14:51 Barnið átti grunlausan blóðföður á Íslandi Niðurstöður DNA rannsóknar hafa leitt í ljós að sveinbarn sem litháísk móðir skildi eftir nýfætt og andvana í ruslageymslu við Hótel Frón í júlí í sumar átti blóðföður hér á landi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. 24. ágúst 2011 07:00 Tveggja vikna gæsluvarðhald og geðheilbrigði rannsakað Litháísk kona á tuttugasta og öðru aldursári, sem er talin hafa fætt barn í gær sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón þar sem hún vann, var úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald í dag en henni var jafnframt gert að gangast undir rannsókn á geðheilbrigði. Kærasti konunnar er laus úr haldi lögreglu. 3. júlí 2011 15:38 Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir konunni síðar í dag Að öllum líkindum verður farið fram á gæsluvarðhald yfir konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í gærmorgun, síðar í dag. 3. júlí 2011 14:53 Í farbanni til 1. september - rannsókn gengur vel Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað konu, sem skildi nýfætt sveinbarn eftir í ruslageymslu við Hótel Frón í síðasta mánuði, í farbann til 1. september næstkomandi. 11. ágúst 2011 11:17 Harmleikur á Laugavegi: Móðirin ákærð Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á móður barnsins sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón í júlí síðastliðnum. 1. nóvember 2011 12:02 Barnslát: Konan enn á sjúkrahúsi Barnið sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón á Laugardaginn verður krufið í dag. Móðir þess er enn á sjúkrahúsi, en hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær. 4. júlí 2011 13:03 Barnslát: Móðirin ekki enn yfirheyrð Konan sem er grunuð um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur enn ekki verið yfirheyrð. Hún verður væntanlega ekki útskrifuð af sjúkrahúsi fyrr eftir einn til tvo daga. 4. júlí 2011 18:51 Mest lesið Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fleiri fréttir Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sjá meira
Barnið með áverka á andliti eftir eggvopn þegar það fannst Móðir sem skildi nýfætt sveinbarn sitt eftir í ruslageymslu við Hótel Frón á laugardag er grunuð um að hafa veitt því áverka í andliti með eggvopni áður en hún kom því fyrir. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar leiddu í ljós að barnið var á lífi og heilbrigt þegar það fæddist en konan er talin bera ábyrgð á andláti þess. 7. júlí 2011 18:45
Líkfundur við Hótel Frón: Vissu ekki að konan væri ólétt Konan sem grunuð er um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við hótel í Reykjavík í gærmorgun er 22 ára gömul og er frá Litháen. Kærasti hennar er enn í haldi. 3. júlí 2011 11:55
Barnslát: Móðirin laus úr gæsluvarðhaldi Litháíska konan, sem ól barn við Hótel Frón um helgina en skildi við það í ruslagámi stuttu seinna, hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta staðfestir verjandi konunnar í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald á sunnudaginn, eftir að barnið fannst látið í ruslagámnum. Hæstiréttur felldi úrskurðinn hins vegar úr gildi. 7. júlí 2011 13:49
Harmleikur á Laugavegi: Munu krefjast farbanns yfir móðurinni Krafist verður farbanns yfir Litháísku konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í Reykjavík á laugardagsmorgun, í héraðsdómi í dag. 7. júlí 2011 14:51
Barnið átti grunlausan blóðföður á Íslandi Niðurstöður DNA rannsóknar hafa leitt í ljós að sveinbarn sem litháísk móðir skildi eftir nýfætt og andvana í ruslageymslu við Hótel Frón í júlí í sumar átti blóðföður hér á landi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. 24. ágúst 2011 07:00
Tveggja vikna gæsluvarðhald og geðheilbrigði rannsakað Litháísk kona á tuttugasta og öðru aldursári, sem er talin hafa fætt barn í gær sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón þar sem hún vann, var úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald í dag en henni var jafnframt gert að gangast undir rannsókn á geðheilbrigði. Kærasti konunnar er laus úr haldi lögreglu. 3. júlí 2011 15:38
Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir konunni síðar í dag Að öllum líkindum verður farið fram á gæsluvarðhald yfir konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í gærmorgun, síðar í dag. 3. júlí 2011 14:53
Í farbanni til 1. september - rannsókn gengur vel Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað konu, sem skildi nýfætt sveinbarn eftir í ruslageymslu við Hótel Frón í síðasta mánuði, í farbann til 1. september næstkomandi. 11. ágúst 2011 11:17
Harmleikur á Laugavegi: Móðirin ákærð Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á móður barnsins sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón í júlí síðastliðnum. 1. nóvember 2011 12:02
Barnslát: Konan enn á sjúkrahúsi Barnið sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón á Laugardaginn verður krufið í dag. Móðir þess er enn á sjúkrahúsi, en hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær. 4. júlí 2011 13:03
Barnslát: Móðirin ekki enn yfirheyrð Konan sem er grunuð um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur enn ekki verið yfirheyrð. Hún verður væntanlega ekki útskrifuð af sjúkrahúsi fyrr eftir einn til tvo daga. 4. júlí 2011 18:51