Barnið með áverka á andliti eftir eggvopn þegar það fannst Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. júlí 2011 18:45
Móðir sem skildi nýfætt sveinbarn sitt eftir í ruslageymslu við Hótel Frón á laugardag er grunuð um að hafa veitt því áverka í andliti með eggvopni áður en hún kom því fyrir. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar leiddu í ljós að barnið var á lífi og heilbrigt þegar það fæddist en konan er talin bera ábyrgð á andláti þess. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar var búið að skera barnið sitthvoru megin við munnvikin þegar það fannst í ruslageymslunni við Hótel Frón. Þetta sést vel á myndum af líkinu af barninu sem eru meðal gagna málsins, samkvæmt heimildum fréttastofunnar, en um er að ræða djúpa skurði og virðist einhvers konar eggvopni hafa verið beitt. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar, sem kynntar voru fyrir konunni í skýrslutöku í gær, leiddu í ljós að barnið var lifandi og heilbrigt þegar það fæddist. Konan er grunuð um að bera ábyrgð á andláti þess sem bar að vofeiflegum hætti. Bæði móðirin og fyrrverandi sambýlismaður hennar, sem eru bæði Litháar, voru í skýrslutökum í gær og í dag. Sambýlismaðurinn fyrrverandi er með réttarstöðu vitnis í málinu, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar. Konan er því ein með réttarstöðu sakbornings í málinu og er því ein grunuð um að bera ábyrgð á að hafa veitt barninu áverka, deytt það, og komið því fyrir í ruslageymslu eftir fæðingu þess. Móðirin var á sunnudag úrskurðuð í gæsluvarðhald til 18. júlí næstkomandi en Hæstiréttur felldi gæsluvarðhaldið úr gildi í dag og taldi að skilyrði gæsluvarðhalds væru ekki fyrir hendi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður niðurstaðan ekki birt á vef Hæstaréttar fyrr en eftir þrjá mánuði, vegna þess hversu viðkvæmt málið er. Krafist var farbanns yfir konunni og Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hana í dag í farbann til 4. ágúst næstkomandi. Verjandi konunnar sagði að ekki hefðu verið ástæður til að andmæla farbanni þar sem hún væri búsett hér á landi og hefði ekki í hyggju að fara úr landi. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Barnslát: Móðirin laus úr gæsluvarðhaldi Litháíska konan, sem ól barn við Hótel Frón um helgina en skildi við það í ruslagámi stuttu seinna, hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta staðfestir verjandi konunnar í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald á sunnudaginn, eftir að barnið fannst látið í ruslagámnum. Hæstiréttur felldi úrskurðinn hins vegar úr gildi. 7. júlí 2011 13:49 Harmleikur á Laugavegi: Munu krefjast farbanns yfir móðurinni Krafist verður farbanns yfir Litháísku konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í Reykjavík á laugardagsmorgun, í héraðsdómi í dag. 7. júlí 2011 14:51 Tveggja vikna gæsluvarðhald og geðheilbrigði rannsakað Litháísk kona á tuttugasta og öðru aldursári, sem er talin hafa fætt barn í gær sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón þar sem hún vann, var úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald í dag en henni var jafnframt gert að gangast undir rannsókn á geðheilbrigði. Kærasti konunnar er laus úr haldi lögreglu. 3. júlí 2011 15:38 Barnslát: Konan enn á sjúkrahúsi Barnið sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón á Laugardaginn verður krufið í dag. Móðir þess er enn á sjúkrahúsi, en hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær. 4. júlí 2011 13:03 Barnslát: Móðirin ekki enn yfirheyrð Konan sem er grunuð um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur enn ekki verið yfirheyrð. Hún verður væntanlega ekki útskrifuð af sjúkrahúsi fyrr eftir einn til tvo daga. 4. júlí 2011 18:51 Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira
Barnslát: Móðirin laus úr gæsluvarðhaldi Litháíska konan, sem ól barn við Hótel Frón um helgina en skildi við það í ruslagámi stuttu seinna, hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta staðfestir verjandi konunnar í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald á sunnudaginn, eftir að barnið fannst látið í ruslagámnum. Hæstiréttur felldi úrskurðinn hins vegar úr gildi. 7. júlí 2011 13:49
Harmleikur á Laugavegi: Munu krefjast farbanns yfir móðurinni Krafist verður farbanns yfir Litháísku konunni, sem er talin hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón í Reykjavík á laugardagsmorgun, í héraðsdómi í dag. 7. júlí 2011 14:51
Tveggja vikna gæsluvarðhald og geðheilbrigði rannsakað Litháísk kona á tuttugasta og öðru aldursári, sem er talin hafa fætt barn í gær sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón þar sem hún vann, var úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald í dag en henni var jafnframt gert að gangast undir rannsókn á geðheilbrigði. Kærasti konunnar er laus úr haldi lögreglu. 3. júlí 2011 15:38
Barnslát: Konan enn á sjúkrahúsi Barnið sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón á Laugardaginn verður krufið í dag. Móðir þess er enn á sjúkrahúsi, en hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær. 4. júlí 2011 13:03
Barnslát: Móðirin ekki enn yfirheyrð Konan sem er grunuð um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur enn ekki verið yfirheyrð. Hún verður væntanlega ekki útskrifuð af sjúkrahúsi fyrr eftir einn til tvo daga. 4. júlí 2011 18:51