Barnslát: Móðirin ekki enn yfirheyrð Andri Ólafsson skrifar 4. júlí 2011 18:51
Konan sem er grunuð um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur enn ekki verið yfirheyrð. Hún verður væntanlega ekki útskrifuð af sjúkrahúsi fyrr eftir einn til tvo daga. Þó að atburðarrás málsins liggi að mestu ljós fyrir eru enn tvö atriði sem lögreglan vinnur að því að upplýsa. Í fyrsta lagi hvort hinn nýfæddi drengur hafi enn verið á lífi þegar móðir hans kom honum fyrir í ruslageymslunni við Hótel Frón. Svör við þeirri spurningu fást vonandi þegar niðurstöður krufningar liggja fyrir en lík drengsins var krufið í dag. Í öðru lagi þar af fá úr því skorið hvort móðirin hafi vitað að hún ætti von á barni. Fyrir liggur að samstarfsfélagar hennar og aðstandendur, þar á meðal fyrrverandi kærasti, vissu það ekki og lögreglan hefur því haldlagt tölvu konunnar og gögn í von um að varpa ljósi á þetta. Bæði þessi atriði skipta munu skipta sköpum þegar að því kemur að ákveða hvort ákæra skuli samkvæmt 211. grein hegningarlaganna þar sem segir að sá sem sviptir annan mann lífi skuli sæta minnst 5 ára fangelsi. Eða 212 greininni sem segir að ef móðir deyðir barn sitt í fæðingunni eða undir eins og það er fætt þá varði það fangelsi allt að 6 árum. Konan sem er frá Litháen liggur enn á sjúkrahúsi en hún var með miklar blæðingar þegar komið var með hana þangað fyrir hádegi á laugardaginn. Hún hefur ekkert verið yfirheyrð, fyrir utan þegar hún var færð fyrir dómara í gæsluvarðhaldsúrskurðinum sem kveðinn var upp á sjúkrahúsinu vegna ástands hennar. Hún verður á sjúkrahúsinu í einn til tvo daga til viðbótar en flutt á litla hraun að því loknu þar sem hún verður höfð í einangrun. Þá mun lögregla hefja yfirheyrslur yfir henni í von um að varpa frekari ljósi á þetta hörmulega mál.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira