Innlent

Skálholt skyndifriðað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skálholtskirkja með Þorláksbúð í forgrunni.
Skálholtskirkja með Þorláksbúð í forgrunni. Mynd/Pjetur
Skálholtsskóli, Skálholtskirkja og nánasta umhverfi hefur verið skyndifriðað. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi Húsafriðunarnefndar í gær. Nikulás Úlfar Másson forstöðumaður nefndarinnar segir að þetta þýði að hætta verði öllum framkvæmdum við Þorláksbúð. Innan tveggja vikna þarf svo að taka endanlega ákvörðun um hvort svæðið verði friðað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×